fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Sjónvarpslæknir varar við – Segir Trump sýna fimm skýr merki

Pressan
Sunnudaginn 7. júní 2026 18:00

Donald Trump Bandaríkjaforseti. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski sjónvarpslæknirinn Vin Gupta, sem eys úr brunni þekkingar sinnar á bandarísku sjónvarpsstöðinni MS Now, birti nýlega færslu á samfélagsmiðlum um Donald Trump og andlegt ástand hans.

Í færslunni lýsir Gupta ákveðnum einkennum sem hann hefur séð hjá Trump á síðustu vikum og mánuðum.

Í færslu sinni á X, skrifaði hann: „Óútreiknanlegur. Getur ekki lokið við setningar. Oft ringlaður. Órökrétt hugsun. Á í vandræðum með að finna orð. Þróast og versnar stig af stigi. Forsetinn sýnir öll merki elliglapa.“

Hann birti færsluna eftir að fólk lýsti áhyggjum af heilsu Trump, meðal annars vegna færslu á Truth Social, sem er samfélagsmiðilli í eigu Trump, þar sem hann notaði sterk orð og skrifaði síðan „lof sé Allah“. The Independent skýrir frá þessu.

En það voru ekki allir sammála þessum skrifum Gupta. Einn svaraði: „Þegar þetta kemur frá manni sem sagði Biden „vera í frábæru formi“, þá er þetta merkingarlaust.“

Annar skrifaði að áróðursmaskína vinstrimanna sé orðinn örvæntingarfull og að fólk trúi ekki lengur því sem kemur úr þeirri átt.

Enn einn lýsti yfir áhyggjum og sagði að Trump gæti verið ógn við heimsfriðinn og efnahag heimsins, sérstaklega af því að hann hefur aðgang að kjarnorkuvopnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar
Pressan
Í gær

Melania varð brjáluð – Sérstök regla um Barron var brotin

Melania varð brjáluð – Sérstök regla um Barron var brotin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Morðmál sem vafðist fyrir lögreglu í 35 ár leystist eftir óvænta játningu

Morðmál sem vafðist fyrir lögreglu í 35 ár leystist eftir óvænta játningu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilja grafa upp lík Dyatlov-hópsins: Gæti ráðgátan loks verið að leysast?

Vilja grafa upp lík Dyatlov-hópsins: Gæti ráðgátan loks verið að leysast?