fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Segir upp störfum mjög óvænt – Alvarlegar ásakanir munu koma fram á næstu dögum

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 6. júní 2026 13:09

David Sullivan Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

West Ham United hefur staðfest að David Sullivan hafi sagt af sér sem stjórnarformaður félagsins með tafarlausum hætti.

Sullivan, sem er 77 ára, lét af störfum eftir að hafa fengið upplýsingar um væntanlega birtingu alvarlegra ásakana úr fortíð hans. Í yfirlýsingu frá félaginu kemur fram að ásakanirnar tengist ekki starfsemi West Ham.

Sullivan neitar öllum ásökunum um ólöglegt athæfi og hyggst höfða mál gegn BBC. Hann tók ákvörðunina um að stíga til hliðar til að trufla ekki starfsemi félagsins á meðan málið er til skoðunar.

Hann hefur verið við stjórnvölinn hjá West Ham í meira en 16 ár og hefur verið umdeildur meðal stuðningsmanna á þeim tíma.

Karim Virani mun gegna starfi framkvæmdastjóra tímabundið, á meðan félagið vinnur að nýrri skipan stjórnar.
Óvíst er hvernig framtíðaruppbygging stjórnarinnar verður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár
433Sport
Í gær

Stjórnarformaður United uppljóstrar um plön félagsins í sumar

Stjórnarformaður United uppljóstrar um plön félagsins í sumar