

OnlyFans-stjarnan Teagan Barnes veltir því fyrir sér hvort að þessi vinsæla vefsíða, þar sem notendur selja gjarnan erótískt eða klámfengið efni gegn mánaðarlegu gjaldi, sé að líða undir lok. Barnes er einn vinsælasti Bretinn á síðunni en hún er reynslumikill áhrifavaldur úr heimi klámsins. Hún skrifar nú grein hjá DailyStar þar sem hún veltir fyrir sér hvort dagar OnlyFans séu nú taldir.
Barnes rekur að vefsíðan hafi sprengt alla vinsældarskala þegar heimurinn sat meira og minna innilokaður á tímum COVID-19.
„Á sínum tíma fannst manni þetta byltingarkennt. Milljónir manna voru fastar heima hjá sér í faraldrinum, fólki leiddist, það var einangrað og þráði mannlega tengingu. Ríkisstjórnir voru að dæla út hlutabótum sem þýddi að margir höfðu auknar ráðstöfunartekjur en færri staði til að eyða þeim á.“
Við þessar aðstæður hafi OnlyFans blómstrað. Þeir sem deildu þar efni höfðu fjárhagslegt frelsi sem aðrir samfélagsmiðlar höfðu ekki boðið upp á. Áhrifavaldar á OnlyFans þurftu ekki, eins og kollegar þeirra á öðrum samfélagsmiðlum, að treysta á kostun eða styrki frá fyrirtækjum. OnlyFans tók einnig hógværa þóknun af áskriftargjöldunum, eða um 20 prósent.
Barnes segir að þegar faraldrinum var lokið hafi vinsældirnar minnkað en þá voru margir áhrifavaldar farnir að treysta á tekjurnar frá síðunni. Þetta olli því að samkeppni um áhorfendur jókst gríðarlega og áhrifavaldar fóru að framleiða grófara efni en áður. Áhrifavaldar hafi í auknum mæli fengið umboðsskrifstofur til að sjá um sín mál sem hafi gert allt umhverfið á síðunni ópersónulegt og vélrænt. Barnes nefnir sem dæmi að nú þegar áskrifendur eru að spjalla við áhrifavaldinn sinn í gegnum netspjall eru margir þeirra í raun að ræða við undirverktaka sem eru sérstaklega þjálfaðir til að plata fólk til að eyða meiri pening. Allt gert til að hámarka áskrifendafjöldann. Allt gert til að græða sem mest. Eins er gervigreindin orðin áberandi á síðunni þar sem nú má finna áhrifavalda sem eru hreinlega ekki til.
Barnes, sem sér enn um allt sitt efni sjálf, veltir því fyrir sér hvort OnlyFans sé enn vettvangur fyrir manneskju eins og hana, manneskju sem vill ekki gera efnissköpun sína vélræna og ópersónulega bara til að hámarka fjölda áskrifenda með því að villa fyrir þeim um hvers konar þjónusta er í boði.
„Kannski er þetta stærsta spurningin sem þessi atvinnugrein stendur frammi fyrir núna: Ef áhorfendur geta ekki lengur séð hvað er raunverulegt á netinu, hættir þá fantasían að virka með öllu? Eða er OnlyFans-tímabilinu kannski ekki að ljúka heldur að tapa þeim sjarma sem gerði síðuna vinsæla til að byrja með? Eða kannski er ég bara að vera vitlaus að hafa ekki fylgt fjöldanum svo ég gæti búið í einhverju stórhýsi í dag.“
Þó að Barnes spái endalokum OnlyFans virðist ekkert lát vera á vinsældum síðunnar. Seljendum efnis fjölgar enn sem og áskrifendum. Raunar hefur seljendum fjölgað svo gríðarlega að á þessu ári var hlutfallið á milli seljenda og áskrifenda um 1:82. Mikið er fjallað í fjölmiðlum um þekktustu stjörnur OnlyFans sem er að græða á tá og fingri. Þær eru þó í agnarsmáum minnihluta. Árið 2024 þénuðu seljendur að meðaltali um 17 þúsund krónur á mánuði. Tekjuhæsta prósentið þénaði um 6,2 milljónir á ári á meðan tekjuhæsta 0,1 prósentið þénaði að meðaltali 93 milljónir, samkvæmt tölfræðisíðunni StatsOnlyFans.
Fréttir af dauða OnlyFans eru því líklega stórlega ýktar enn sem komið er, sé aðeins horft á fjölda áskrifenda og veltuna. Barnes er þó líklegast að vísa til þess að OnlyFans, sem hét og var, sé að mestu úr sögunni. Síðan hafi orðið vinsæl á tímum faraldurs og einangrunar og bauð fólki upp á mannlega tengingu. Þessi mannlegi þáttur sé nú á undanhaldi. Mennskan mátti víkja fyrir gróðanum. Umboðsskrifstofur sjá nú um að fjöldaframleiða efni og áskrifendur eru blekktir þegar þeir eru sannfærðir um að þeir séu að spjalla við áhrifavald þegar þeir eru í raun að spjalla við óviðkomandi þriðja aðila sem vill ekkert heitar en að kreista úr áhorfandanum meiri pening.