fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Lady Gaga með óvæntar upplýsingar um kjólinn sem hún klæddist við embættistöku Joe Biden

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 11. nóvember 2021 09:00

Þetta er ansi umfangsmikill kjóll. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska söngkonan Lady Gaga er líklega jafn þekkt fyrir ótrúlegan klæðaburð sinn á tíðum og fyrir tónlist sína. Í samtali við British Vogue skýrði hún frá því að það hafi ekki verið nóg með að kjóllinn sem hún klæddist við embættistöku Joe Biden, sem forseta Bandaríkjanna, hafi ekki aðeins verið fallegur, hann var einnig skotheldur.

„Þetta er ein af uppáhaldsflíkunum mínum. Ég var í kjólnum við innsetninguna og enginn veit það en þetta er skotheldur kjóll,“ sagði hún.

Kjólinn samanstendur af þröngum jakka, umfangsmiklum neðri hluta og risastórri gylltri nælu, dúfu sem táknar frið, og var hannaður af Daniel Roseberry.

„Þegar ég sá gylltu dúfuna vissi ég að ég yrði að bera hana,“ sagði Lady Gaga um næluna sem var síðan seld í minni útgáfu til styrktar „Born This Way“ góðgerðasamtökunum.

Lady Gaga sagði að þessi dagur sé meðal þeirra daga sem hún sé stoltust af. Það hafi verið frábært að fá að syngja þjóðsönginn við innsetningu Biden í embætti. Hún sagði einnig að hún muni aldrei gleyma samtalinu við Evan Campbell, kaptein í sjóhernum, sem fylgdi henni að sviðinu: „Hann spurði hvort ég væri taugaóstyrk og ég sagði já.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki