fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Meirihlutamyndun í Reykjavík flóknari en af er látið – enn getur allt gerst – fjórði lélegasti árangur Sjálfstæðisflokksins í sögunni

Eyjan
Fimmtudaginn 21. maí 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hefur þegar lýst því yfir að hún verði næsti borgarstjóri Reykjavíkur þótt enginn meirihluti hafi verið myndaður enn. Hún þreytist ekki á að státa af miklum sigri flokksins í borginni og að listinn eigi nú alls kostar. En hve mikill sigur var þetta? Þegar betur er að gáð er niðurstaða Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fjórði lélegasti árangur flokksins frá upphafi, eða í 64 ár. Borgarstjórnarkosningar fóru fyrst fram árið 1962. Þannig hafa farið fram 16 borgarstjórnarkosningar þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði jafnan hreinan meirihluta borgarfulltrúa. Hin síðari ár hafur hallað undan færi hjá flokknum.

Minnsta fylgi sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur fengið í borginni er sem hér segir:

  • Árið 2022 – 24,5% – oddviti Hildur Björnsdóttir.
  • Arið 2014 – 25,7% – oddviti Halldór Halldórsson
  • Árið 2018 – 30,8% – oddviti Eyþór Arnal
  • Árið 2026 – 32,9% – oddviti Hildur Björnsdóttir
  • Árið 2010 – 33,6% – oddviti Hanna Birna Kristjánsdóttir
  • Árið 2002 – 40,3% – oddviti Björn Bjarnason

Hildur Björnsdóttir hefur því gegnt stöðu oddvita í tvennum af fernum lélegustu kosningum Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn síðustu 64 árin.

Orðið á götunni er að „sigur“ Sjálfstæðisflokksins sé því fráleitt af þeirri stærð sem tíðkaðist lengi vel. Árið 1990 hlaut flokkurinn stuðning 60,4 prósent kjósenda. Það var raunverulegur sigur og á milli þeirri niðurstöðu og hinnar sem fékkst núna er himinn og haf.

Sjálfstæðisflokknum er vandi á höndum að mynda meirihluta í borginni. Hvar finnur hann þrjá borgarfulltrúa sem unnt er að mynda bandalag við þar sem hægt er að treysta á heilindi milli flokkanna? Vandinn er m.a. sá að innan Sjálfstæðisflokksins eru öfl sem hafa talað mjög illa um bæði Miðflokkinn og Viðreisn og geta ekki hugsað sér samstarf við þessa flokka nema í algerri neyð – og þá verður erfitt að byggja upp traust samstarf. Innan Miðflokksins og Viðreisnar eru einnig ýmsir sem treysta Sjálfstæðisflokknum illa og hafa yfirgefið flokkinn af málefnalegum ástæðum. Það verður erfitt að setja slíkt aftur fyrir sig og halda að unnt verði að byggja upp traust milli flokka rétt eins og hendi sé veifað nokkrum dögum eftir kosningar. Til viðbótar við þetta hefur oddviti Sjálfstæðisflokksins lýst því ítrekað yfir að ekki komi tilgreina að vinna með Samfylkingunni eða Sósíalistaflokkum, þó að flokkinn hafi ekkert munað um það í sjö ára ríkisstjórn undir forsæti formanns Sósíalista!

Orðið á götunni er að margræddur klofningur hafi ekki verið upprættur í Sjálfstæðisflokknum þótt þrír frambjóðendur flokksins frá því árið 2022 hafi yfirgefið flokkinn með stóryrðum og hávaða og gengið í Miðflokkinn. Þar er um að ræða Helga Áss Grétarsson, manninn sem lumar á ólögmætum upptökum af fundum borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, Mörtu Guðjónsdóttur og Kjartan Magnússon sem báðum var ýtt út af lista flokksins eftir langa samleið. Þau tvö voru einkar orðljót í kosningabaráttunni að undanförnu. Talið er að nú ríki vopnaður friður um borgarmálin innan flokksins. Ýmsir geyma samt rýtingana enn í stígvélunum.

Guðlaugur Þór Þórðarson hafði í hyggju að sækjast eftir efsta sæti listans í oddvitaprófkjöri. Hann langar einhver ósköp að ná meiri frama í flokknum en hann hefur þó fengið á þingi og í þremur ríkisstjórnum á vegum flokksins. Hann skoraði Bjarna Benediktsson á hólm í formannskjöri eins og menn muna en tapaði. Hann ætlaði í formannsframboð þegar Bjarni hætti í fyrra en gugnaði og svo dreymdi hann um oddvitasæti í borgarstjórn en bakkaði á síðustu mínútu þegar leynilegar skoðanakannanir sýndu honum að hann myndi tapa. Þá samdi hann frið við Hildi sem gekk út á að hann réði skipan mikilvægra sæta á listanum. Líklega eru fjögur af níu sætum borgarfulltrúanna núna á vegum Guðlaugs Þórs. Hildur hefur verið yfirlýstur stuðningsmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur í þeim átökum sem verið hafa um forystusætin á þingi fyrir flokkinn í borginni. Áslaug snýr senn heim frá vetursetu í Bandaríkjunum. Guðlaugur Þór situr nú sem óbreyttur þingmaður og virðist una hag sínum illa, fúll á móti öllu sem upp kemur.

Það er því ekkert öruggt í borgarmálunum fram undan. Ekki er á vísann að róa.

Orðið á götunni er að upp gæti komið sú staða að fjögur framboð semdu um meirihluta, Miðflokks, Viðreisnar, Samfylkingar og Vors til vinstri þar sem Ari Edwald yrði borgarstjóri, alla vega fyrstu tvö árin og hefði forystu um vissar tiltektir í rekstri borgarinnar enda eini maðurinn í hópi allra borgarfulltrúanna sem hefur reynslu af rekstri stórra fyrirtækja en hann hefur verið forstjóri 365 miðla og Mjólkursamsölunnar með mörg Hundruð manns í vinnu og flókinn rekstur.

Það er ekkert fast í hendi. Spakmælið dramb er falli næst er enn í fullu gildi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Hvað er að vera Íslendingur?

Björn Jón skrifar: Hvað er að vera Íslendingur?
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Veit Einar Þorsteinsson hvenær hann segir satt og hvenær hann er að ljúga?

Orðið á götunni: Veit Einar Þorsteinsson hvenær hann segir satt og hvenær hann er að ljúga?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Hjalti Árnason skrifar: Hreinsanir að Varmá

Hjalti Árnason skrifar: Hreinsanir að Varmá