fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Kristrún Frostadóttir: Væri algjör afleikur að setjast aftur að teikniborðinu

Eyjan
Fimmtudaginn 14. maí 2026 12:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það myndi stórskaða samgöngur á höfuðborgarsvæðinu ef aftur væri sest að teikniborðinu til að teikna upp samgöngusáttmálann. Það myndi stöðva framkvæmdir og fresta málinu um einhver ár. Það gleymist oft að jafn stór hluti samgöngusáttmálans snýr að einkabílnum og snýr að almenningssamgöngum. Samgöngusáttmálinn er einmitt hannaður til að auðvelda umferð einkabílsins. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Eyjan - Kristrún Frostadóttir - 3
play-sharp-fill

Eyjan - Kristrún Frostadóttir - 3

Svo er annað stórt mál sem er hápólitískt. Það eru samgöngumálin. Og það er Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins og Borgarlínan. Þegar var skrifað upphaflega undir þann sáttmála þá voru allir bæjarstjórarnir sem skrifuðu undir, aðrir en borgarstjórinn í Reykjavík Sjálfstæðismenn, fjármálaráðherrann, hann var Sjálfstæðismaður. Forsætisráðherra Vinstri grænn og samgönguráðherra Framsóknarmaður. En samgöngusáttmálinn er hann ákveðin málamiðlun og eflaust ekkert fullkominn frekar en annað sem þarf að gera málamiðlanir um. En þetta er alveg bráðnauðsynlegt og við getum ekki bara hent öllu út um gluggann og ákveðið að byrja bara að undirbúa á einhverjum allt öðrum forsendum.

„Það myndi stórskaða samgöngur hérna á höfuðborgarsvæðinu ef við færum aftur að teikniborðinu. Þetta er ávísun á frestun á framkvæmdum að fara aftur með málið inn í nefndir í gegnum alla stjórnsýsluna. Því ferli er núna lokið. Auðvitað koma uppfærslur af og til. Ég get alveg skilið að fólk vilji hafa valkost í sínum samgöngumálum. En það er auðvitað það sem samgöngusáttmálinn hefur gengið út frá. 40% af því fjármagni sem er eyrnamerkt inn í samgöngusáttmálann snýr að götum og einkabílnum. Það gleymist oft í þessu samhengi.

Það er verið að stórauka fjármagn í að liðka fyrir í rauninni getu einkabílsins til þess að vera víða og meðal annars síðan með mótframlagi hinu 40% megin út af borgarlínu og almenningssamgöngur og síðan eru þarna 10-20% út af hjólastígum. Ég er nú ekki sérfræðingur í þessum almenningssamgöngumálum, þetta hefur svolítið svolítið verið á sviði sveitarfélaganna. en heyrt alveg ótrúlegar tölur upp á síðkastið þar sem er verið að fara yfir bara þann hluta hóps. Þetta eru einhverjir þúsundir manna á hverjum degi sem hjóla í vinnuna til dæmis hérna á svæðinu. Ef þetta fólk væri að raða sér upp í röð, eitt í bíl, þá myndi þetta svoleiðis stórauka umferðarþungann hérna á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjavík.

Það sama á auðvitað við um þær breytingar sem er verið að gera hérna víða í borginni þar sem fólk upplifir að það sé verið að þrengja að. Það er verið að búa til annan möguleika svo að fleiri geti nýtt sér samgöngur til að ryðja brautina fyrir þá sem vilja keyra bílinn sinn. Þannig að ég hef alltaf sagt við fólk sem vill vera meira á bíl, og það er bara mjög skiljanlegt af því að aðstæður fólks eru mismunandi, að maður á að vilja að aðrir setjist ekki upp í bílinn sinn svo að leiðin sé greið fyrir mann sjálfan. Það hefur kannski minna einmitt verið talað um hvað þetta léttir mikið á stöðunni fyrir aðra. Þannig að ég skil alveg þann hluta af Samgöngusáttmálanum þar sem að fólk var orðið svona þreytt á að bíða eftir ákveðnum framkvæmdum og það eru nú stórar framkvæmdir núna í gangi eins og Fossvogsbrúna og önnur gatnamót sem er verið að taka í gegn. En það styttist í þetta og núna verðum við bara að klára málið. Það væri algjör afleikur að ætla að setjast aftur að teikniborðinu og þá verðum við nú endanlega föst í umferðinni eilífu.“

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík, hann gengur nú ekki óskiptur til leiks í þessu, það eru skiptar skoðanir þar.

„Forystan þar gefur í og úr og ég meina fyrir mér er þetta bara svona mál þar sem fólk á að geta leyft sér að vera sammála um það að það þarf bara að bæta þessi mál. Heilt yfir ætti fólk að geta tekið undir að það þarf að létta á bílaumferð í borginni. Það hefur ekkert að gera með, eins og ég segi, að fólk megi ekki vera á bíl, þetta snýst bara um að fólk hafi aðgengi. Og það er ekki raunhæft, ef allir aðrir líka nýta einkabílinn, að þú komist að honum líka, þannig að þetta snýst um svona ákveðna eðlilega stýringu og skapar svigrúm.“

Ég vann hérna bara skáhallt á móti Stjórnarráðinu þegar ég var á Fréttablaðinu og tók Strætó í vinnuna úr Kópavogi og þá þurfti ég að skipta í Kópavoginum, Kópavogsdalnum. Það voru 99% bílanna sem keyrðu fram hjá hægt og rólega af því það var svo mikil umferð að umferðin komst varla áfram, það var 99% bílanna, það var ein manneskja í bílnum.

„Já, að er auðvitað víða þannig. En fyrir mér Ólafur, þetta er svona mál, nú ætla ég ekki að segja að það sé ekki pólitík í því vegna þess að til dæmis eins og kostnaður fólks við að eiga bíl er mjög mikill og ef það er hægt að draga úr honum með einum eða öðrum hætti með því að nýta betur almenningssamgöngur er þetta mikil pólitík í þessu. En fyrir mér finnst mér alveg ótrúlegt að þetta séu einhverjar átakalínur í borginni.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir
Hide picture