fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Narsissisminn

Eyjan
Laugardaginn 16. maí 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í grísku goðafræðinni er sagt frá hinum íðilfagra konungssyni Narsissusi. Skógardísin Ekkó varð ástfangin af piltinum en sú ást var ekki endurgoldin. Gyðjurnar á Ólympsfjalli reiddust og lögðu það á prinsinn að hann yrði einungis ástfanginn af sinni eigin spegilmynd.

Þetta rættist. Narsissus sá sjálfan sig í litlu stöðuvatni í skóginum og féll í stafi af ást. Eftir það sat hann við vatnið og dáðist að eigin fegurð. Þau urðu örlög Narsissusar að hann dagaði uppi á bakkanum í takmarkalausri sjálfsaðdáun. Hann nærðist ekki heldur dó hægum dauðdaga úr sjálfhverfu.

Æ síðan hafa sjálfmiðaðir menn verið kallaðir narsissistar.

Á síðustu tímum hafa narsissistar fengið ný leikföng til að blása upp eigin sjálfsmynd. Með aðstoð gervigreindar er hægt að vera hvaða persóna sem er. Menn biðja gervigreindina að gera af sér myndgervi í líki Napóleons, Alexanders mikla eða Elvis Presley. Forseti Bandaríkjanna birti mynd af sér eins og páfanum eða Jesús Kristi að sinna sjúkum. Venjulegir Íslendingar endurnýja prófílmyndina sína í sífellu. Umbunin kemur í líki fjölda læka og jákvæðra athugasemda: „flottur, flottastur, glæsilegur.“

Narsissistar hafa þörf fyrir stöðuga viðurkenningu. Þeir lifa í tilfinningalegu tómarúmi þar sem ekkert skiptir máli nema eigin sjálfsmynd. Þetta leiðir venjulega til alvarlegrar tengslaröskunar gagnvart umhverfinu. Narsissistinn getur ekki sýnt eðlilega hluttekningu vegna þess hversu upptekinn hann er af sjálfum sér.

Yfirstandandi kosningar eru eins og langdregin narsissistísk sjálfsfróun. Það er jafngildi raðfullnæginga að sjá af sér mynd á öllum strætóskýlum borgarinnar. Frambjóðendur koma fram í sjónvarpsauglýsingum þar sem þeir spígspora um borgina eins og Jesú á vatninu og lofa kraftaverkum í allar áttir. Þeir ætla að leysa umferðahnútana og húsnæðisvandann með handayfirlagningu. Þess á milli taka þeir þátt í kjúklingavængjaáti og segja eitthvað spaklegt.

Venjulega endar þessi takmarkalausa sjálfsaðdáun illa eins og í grísku goðafræðinni. Frægasti narsissisti Íslendingasagna Gunnar á Hlíðarenda dagaði uppi og var drepinn á háðulegan hátt. Aðrir narsissistar veslast upp kyssandi tölvuskjáinn ástfangnir upp fyrir haus af sjálfum sér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Ný borgarstjórn

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Ný borgarstjórn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Harðlínan gegn meirihlutanum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Harðlínan gegn meirihlutanum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Það er bara eitt vopn gegn loforðaverðbólgunni

Þorsteinn Pálsson skrifar: Það er bara eitt vopn gegn loforðaverðbólgunni
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Krónukvíðinn

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Krónukvíðinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sjö raundæmi um sjö raundæmi fyrrum forseta

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sjö raundæmi um sjö raundæmi fyrrum forseta
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Thomas Möller skrifar: Hugleiðingar frá Hiroshima

Thomas Möller skrifar: Hugleiðingar frá Hiroshima
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins

Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Nína Richter skrifar: Ósexí rasistar

Nína Richter skrifar: Ósexí rasistar