fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
EyjanFastir pennar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar

Eyjan
Sunnudaginn 17. maí 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pistlahöfundur er þannig gerð að svo að segja í hvert skipti sem hún kynnist manneskju sem hún kann vel við hugsar hún: Mikið virðist þetta vera góður hægri krati!

Það að vera hægri krati finnst henni vera eitt besta hrós sem hægt er að gefa manneskju. Ekki eru þó allir sammála því. Hún man til dæmis þegar hún sagði, á árum Gömlu-Samfylkingarinnar, við áberandi fúllyndan og þekktan flokksfélaga að hún væri hægri krati. Hann sagði: „Það er ekkert til sem heitir hægri krati!“ Tónninn var fullur fyrirlitningar og ekki var hægt að taka orðum hans á annan hátt en hann væri fyrir hönd flokksins að hafna atkvæði pistlahöfundar, sem sennilega þótti ekki nægilega vinstri sinnuð.

Örfáum mánuðum síðar fékk Samfylkingin 5,7 prósent atkvæða í kosningum. Það kom pistlahöfundi ekki á óvart. Þetta var flokkur sem vildi bara láta suma kjósa sig, og þessir sumir urðu ekki nægilega margir í alþingiskosningunum í október árið 2016.

Pistlahöfundur á vini og kunningja úr hinum ýmsu flokkum. Hún er ekkert að skipta sér af stjórnmálaskoðunum þeirra. Þarna eru nokkrir kunningjar sem eru svo staðfastir Sjálfstæðismenn að engu er líkara en þeir tilheyri sértrúarsöfnuði. Aldrei, aldrei myndi hvarfla að þeim að kjósa annað en sinn flokk. Alls ólíkt pistlahöfundi sem hefur nokkrum sinnum farið í tilraunastarfsemi í kjörklefanum og sett X við flokk einungis vegna þess að henni fannst rétt að gefa honum tækifæri. Tíminn hefur reyndar dæmt flestar þær ákvarðanir rangar.

Þar sem pistlahöfundur trúir því að hver manneskja verði að fá að eiga sína trú í friði gerir hún aldrei minnstu tilraunir til að snúa þessum X-D kunningjum sínum frá eldheitri trú á flokk sinn. Hún veit líka að það myndi aldrei ganga og vill ekki eyða tíma sínum til einskis.

Fyrir einhverjum árum hafði einn X-D kunningjanna ekki samband mánuðum saman. Loks lét hann heyra frá sér. Hann sagðist ætla að útskýra langa þögn sína. Hún hefði stafað af því að pistlahöfundur hefði skrifað svo illa um Sjálfstæðisflokkinn í nokkrum pistlum að hann hefði ekki haft geð í sér til að tala við hana. Hann hefði íhugað að slíta kunningsskapnum en hætt við það. Pistlahöfundur vildi ekki særa hann með því að segja að hún hefði ekkert tekið eftir þögn hans. Hún er oft utan við sig og tekur ekki alltaf eftir tímanum sem líður frá því hún hittir kunningja sína.

Annar X-D kunningi, stórskemmtilegur, er alltaf mjög virkur fyrir kosningar og vinnur af aðdáunarverðri staðfestu fyrir flokkinn sinn. Pistlahöfundur borðaði með honum hádegismat fyrir borgarstjórnarkosningar. Yfir matnum spurði hann hana hvað hún ætlaði að kjósa. Hún sagðist ætla að kjósa Samfylkinguna. Hann horfði á hana og sagði rólega en af mikilli festu: „Þú þarft ekki að gera það!“ (Pistlahöfundur gerði það nú samt).

Eftir hádegisverðinn vildi kunninginn sýna pistlahöfundi kosningaskrifstofu flokksins sem var skammt frá. Hún var sannarlega til í það, enda lítur hún ekki á Sjálfstæðisflokkinn sem hættulegan óvin, þótt henni þyki hann hafa verið á villigötum síðustu árin. Það var allavega ekkert hættulegt í fari Hildar Björnsdóttur sem stödd var á kosningaskrifstofunni og heilsaði pistlahöfundi einkar hlýlega og fallega.

Um það bil viku fyrir kosningar var í sjónvarpsfréttatíma RÚV talað við kjósendur í Mosfellsbæ. Að minnsta kosti tveir sögðust ætla að kjósa einstakling sem þeim litist ljómandi vel á frekar en flokk. „Þetta eru sveitarstjórnarkosningar, þá kýs maður persónu frekar en flokk,“ sagði einn viðmælandinn. Hann sagði þá persónu sem hann ætlaði að kjósa vera á lista flokks sem hann hefði aldrei áður kosið.

Pistlahöfundur kinkaði kolli við þessari frétt. Það er nefnilega ekki eins og hæfasta manneskjan sé alltaf í flokknum sem maður kýs venjulega.

Þess vegna á maður að vera rólegur yfir kosningaúrslitum og ekki leggjast í sút. Það er alltaf einhver þarna í hinum flokkunum sem er líklegur til að standa sig vel og gera gagn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Taktvísir hundar

Nína Richter skrifar: Taktvísir hundar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Samstarf Bandaríkjanna og ESB-ríkja í öryggis- og varnarmálum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Samstarf Bandaríkjanna og ESB-ríkja í öryggis- og varnarmálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Heilbrigðiskerfið reiðir sig á erlent vinnuafl

Sigmundur Ernir skrifar: Heilbrigðiskerfið reiðir sig á erlent vinnuafl
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Kosninganótt

Óttar Guðmundsson skrifar: Kosninganótt
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar: Hvað er að vera Íslendingur?

Björn Jón skrifar: Hvað er að vera Íslendingur?
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins

Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Loforðaverðbólga

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Loforðaverðbólga
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Húsaleigulögin eru torf

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Húsaleigulögin eru torf