fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir við kaup Nova á Ofar

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. maí 2026 17:26

Sylvía Ólafsdóttir, forstjóri Nova.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkeppniseftirlitið telur ekki tilefni til frekari rannsókna eða afskipta af kaupum Nova á öllu hlutafé í Ofar hf. Niðurstaða athugunar Samkeppniseftirlitsins er sú að stofnunin gerir ekki athugasemdir við kaupin og lýkur þar með afskiptum hennar af málinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nova, þar sem segir:

„Nova klúbbnum hf. hefur borist tilkynning frá Samkeppniseftirlitinu þar sem fram kemur að eftirlitið telji ekki tilefni til frekari rannsóknar eða íhlutunar vegna kaupa Nova á öllu hlutafé í Ofar hf. Samkeppniseftirlitið gerir því ekki athugasemdir við viðskiptin og lýkur þar með meðferð málsins af hálfu eftirlitsins. Undirritun samnings um kaup Nova á öllu hlutafé í Ofar fór fram 20. febrúar sl.

Eins og fram kom í fyrri tilkynningu félagsins nemur heildar virði kaupanna 4,4 ma.kr. Kaupin eru fjármögnuð með nýju lánsfé að fjárhæð 2,8 ma.kr. og handbæru fé að fjárhæð 1,6 ma.kr. Heildartekjur Ofar á árinu 2025 voru um 7,8 ma.kr., EBITDA félagins tæplega 620 m.kr. og rekstrarhagnaður um 360 m.kr. Áætlaður vöxtur Ofar á núverandi ári sem og áætluð jákvæð samlegðaráhrif á EBITDA samstæðu Nova klúbbsins eru samtals um 250 m.kr. á ársgrundvelli, þegar þau eru að fullu komin fram. Þannig verða áætluð heildaráhrif á EBITDA samstæðunnar um 870 m.kr., en gert er ráð fyrir að árlegar fjárfestingar samstæðunnar aukist um 60 m.kr. á ári. Viðskiptin munu þannig styrkja sjóðstreymi samstæðunnar verulega.

Gert ráð fyrir að lokauppgjör og frágangur viðskiptanna fari fram á næstu vikum, þegar öðrum skilyrðum kaupanna hefur verið fullnægt. Að kaupunum frágengnum mun Ofar hf. teljast hluti af samstæðu Nova klúbbsins hf. frá og með kaupsamningsdegi, 20. febrúar 2026.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir