fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Eyjan

Hjalti Árnason skrifar: Hreinsanir að Varmá

Eyjan
Föstudaginn 15. maí 2026 11:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjalti Árnason, þriðji maður á lista Miðflokksins í Mosfellsbæ:

Það eru gríðarleg  félagsleg verðmæti fólgin í því að fólk hittist og ekki er verra ef hægt að er auka hreyfingu og bæta lýðheilsu í leiðinni. Núverandi stjórnendur í Mosfellsbæ hafa því miður staðið fyrir hreinsunum að Varmá þar sem lokað var á aðgengi fatlaðra að líkamsrækt í bænum, einnig var eldri borgurm og almenningi úthýst æyr mannvirkjum Mosfellsbæjar þar sem rekstur og húsnæði telur í milljörðum. Það hljómar einkennilega að aðkomuíþróttmönnum sé greitt fyrir að æfa í íþróttamannvirkum Mosfellsbæjar en skattgreiðendur sem borga brúsann geti ekki keypt sér aðgang að líkamsrækt.

Það var einnig ákveðið að frjálsar íþróttir skyldu vera í mýflugumynd í framtíðinni og algjört bann  við spjótkasti, kringlukasti, sleggjukasti, tugþraut og sjöþraut.

Engin mót hafa verið í frjálsum íþróttum síðustu ár í Mosfellsbæ, keppendur fyrir Mosfellsbæ hafa varla sést á Íslandsmótum, bikarmótum eða landsmótum UMFí og engin verðlaun hafa komið í hlut okkar í fullorðinsflokkum síðustu ár. Þar fyrir utan verða engin mót haldin hér í framtíðinni þar sem nýi frjálsíþróttavöllurinn að Varmá er lítill og ólöglegur til mótahalds. Landsmót UMFÍ var haldið hér í Mosfellsbæ 1990  þar sem  Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands setti mótið og tugir þúsunda streymdu í Mosfellsbæ á stærsta íþróttaviðburð sem haldin hefur verið í bænum og Jón Arnar Magnússon ásamt fjölmörgum framtíðaríþróttamönnum mættu til leiks. Í raun og veru hafa núverandi stjórnendur Mosfellsbæjar slitið tengsl sín við ungmennafélagshreyfinguna með því að banna hluta frjálsra íþrótta í bænum og tryggja að engin lögleg mót verið haldin eða met verði  sett í Mosfellsbæ .

Staða kraftlyftinga og ólympískra lyftinga  er ekki góð þar sem á síðasta ári voru settar verulegar hömlur á starfsemina og nú hefur starfseminni verið úthýst síðustu 5 mánuði. Algjört bann hefur verið í Mosfellsbæ varðandi mótahaldi í þessum greinum í rúmt ár.

Þrátt fyrir að núverandi stjórnendur Mosfellsbæjar keyri nú á slagorðum eins og „Fyrir Mosó“ eða „Þetta snýst um Mosó“ er ekki að sjá að svo sé.

Miðflokkurinn er eini flokkurinn sem getur snúið við þessari óheilla þróun.

@midflokkurinn.mos Hjalti kíkir á varmávöll #miðflokkurinn #kosningar2026 #mosfellsbær #iceland #sveitarstjórnarkosningar2026 ♬ original sound – XM Mosfellsbær

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sigríður Hagalín svarar gagnrýnendunum: „Að gefnu tilefni“

Sigríður Hagalín svarar gagnrýnendunum: „Að gefnu tilefni“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Magnús Árni afhjúpar líflátshótun – Hannes Hólmsteinn: „Þú ert eins og prinsessan á bauninni“

Magnús Árni afhjúpar líflátshótun – Hannes Hólmsteinn: „Þú ert eins og prinsessan á bauninni“
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hræðslan við 29. ágúst

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hræðslan við 29. ágúst
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Hvort er gáfulegra að vita meira en minna?

Sigmundur Ernir skrifar: Hvort er gáfulegra að vita meira en minna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Albert Jónsson: Ísland eina ríkið til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður – aldrei gerst áður

Albert Jónsson: Ísland eina ríkið til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður – aldrei gerst áður
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“