fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Fréttir

Móðir ákærð eftir að ungar dætur hennar drukknuðu í kókaínvímu – Amman fann stúlkurnar í sundlauginni

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 12. maí 2026 21:30

Laura hefur verið ákærð. Mynd/Lögreglan í Harris sýslu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Móðir í Texas hefur verið ákærð eftir að tvær barnungar dætur hennar drukknuðu í sundlaug. Dæturnar, sem voru aðeins tveggja og þriggja ára gamlar, voru með kókaín í blóðinu.

Lögreglan í Harris sýslu, nálægt borginni Houston, greindi frá því í gær, mánudaginn 11. maí, að 23 ára kona, Laura Nicholson, hefði verið handtekin og ákærð fyrir aðkomu að dauða dætra sinna tveggja, hinna tveggja ára Kelsey Kite og þriggja ára Kinsey Kite. Dæturnar drukknuðu í sundlaug í bakgarði heimilisins.

„Rannsókn okkar hefur leitt í ljós að bæði börnin voru með kókaín í blóðinu þegar þau létust,“ sagði lögreglustjórinn Ed Gonzalez í færslu á samfélagsmiðlum eins og segir í frétt People um málið. Hefur réttarmeinafræðingur úrskurðað lát þeirra sem blöndu af drukknun og kókaíneitrun. Einnig voru svokölluð bensó lyf í blóði þeirra, en algengt er að misnota slík efni sem fíkniefni.

Laura Nicholson og dætur hennar bjuggu með foreldrum hennar. Laura og faðir hennar voru sofandi í húsinu þegar slysið átti sér stað en móðirin, amma stúlknanna var að kaupa í matinn. Það var amman sem fann þær látnar í sundlauginni þegar hún kom heim úr búðinni.

Laura sagði lögreglunni að hún hefði vaknað við öskur móður sinnar úti í garði. Handfangið að bakgarðshurðinni hafði verið bilað lengi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mímir kallar eftir samúð og tillitssemi við konungsfjölskylduna – „Ekkert af þessu varðar almenning“

Mímir kallar eftir samúð og tillitssemi við konungsfjölskylduna – „Ekkert af þessu varðar almenning“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áhrifavaldur hraunar yfir Ísland og fær það óþvegið: „Langversti ferðamannastaður sem ég hef heimsótt á ævinni“

Áhrifavaldur hraunar yfir Ísland og fær það óþvegið: „Langversti ferðamannastaður sem ég hef heimsótt á ævinni“