fbpx
Miðvikudagur 10.júní 2026
Fókus

Sonur Tom Hanks býr í hjólhýsi – Ástæðan er þessi

Fókus
Mánudaginn 11. maí 2026 07:30

Efnislegir hlutir skipta Chet litlu máli. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sonur bandaríska Óskarsverðlaunaleikarans Tom Hanks hefur vakið athygli fyrir óhefðbundinn lífsstíl sinn eftir að hann yfirgaf ljúfa lífið í Hollywood og flutti til Nashville.

Chet Hanks er leikari, fyrirsæta en umfram allt tónlistarmaður og sagði hann einmitt skilið við Hollywood til að einbeita sér að tónlistarferlinum. Hann býr nú í hjólhýsagarði í Tennessee og sér ekki eftir þeirri ákvörðun – enda bæði einfaldur og hagkvæmur búsetukostur.

Chet, sem er 35 ára, ræddi búsetuna í viðtali í The Tonight Show með Jimmy Fallon á dögunum. Þar sagði hann að hann hefði ekki viljað flytja inn í aðra íbúð eftir að hafa nýlega eytt tíma og peningum í að innrétta heimili sitt í Los Angeles.

„Mig langaði ekki að standa í því aftur,“ sagði hann og bætti við að leiguhúsnæði sem hann hafði prófað fyrst eftir flutningana hefði fljótt orðið þreytandi.

Í stað þess ákvað hann að kaupa hjólhýsi sem hann segir uppfylla allar þarfir sínar. Hann lýsti því að hann hefði eigið eldhús og rúmgóða sturtu, sem væri sjaldgæft í slíkum vögnum.

Chet lagði áherslu á að hjólhýsagarðurinn þar sem hann býr væri rólegur og langt frá því að vera óöruggur eða niðurníddur. Þar byggi að mestu eldra fólk og sagðist hann líklega vera langyngsti íbúinn á svæðinu.

Í myndbandi sem hann birti á Instagram í mars svaraði hann einnig gagnrýni fólks sem velti fyrir sér af hverju sonur eins þekktasta og ríkasta leikara heims byggi í hjólhýsi.

Hann sagði lífsstílinn bæði ódýran og frelsandi og upplýsti að hjólhýsið hefði kostað um 30 þúsund dali, 3,6 milljónir króna, en mánaðarleigan fyrir stæðið væri aðeins um 50 þúsund krónur.

Þá gagnrýndi hann það sem hann kallaði „hustle-menningu“ sem vísar til kröfunnar til fólks um að það vinni meira og græði meira. Hvatti hann fólk til að hugsa betur um hvað það vilji raunverulega fá út úr lífinu.

„Hver er draumurinn? Að keyra Rolls Royce?“ spurði hann og bætti við að efnislegir hlutir skilgreindu ekki hamingju. Að hans mati felst hamingjan í því sem fólk framkvæmir, en ekki því sem það eignast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Sveinn Andri og Vigdís gift

Sveinn Andri og Vigdís gift
Fókus
Fyrir 2 dögum

Instagram vikunnar: „Ég er að hugsa!“

Instagram vikunnar: „Ég er að hugsa!“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag
Fókus
Fyrir 4 dögum

Segir Ódysseif „erfiðustu mynd sem ég hef nokkurn tímann gert“

Segir Ódysseif „erfiðustu mynd sem ég hef nokkurn tímann gert“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Nístandi sorg eftir andlát Jóhannesar – „Átti allt lífið framundan“

Nístandi sorg eftir andlát Jóhannesar – „Átti allt lífið framundan“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ný heimildarmynd varpar ljósi á leynda sjúkdómsbaráttu Marilyn Monroe

Ný heimildarmynd varpar ljósi á leynda sjúkdómsbaráttu Marilyn Monroe