fbpx
Mánudagur 15.júní 2026
433Sport

Katrín ósátt með ummæli Jóns um rassgatið á Allison – „Hann þarf að passa sig“

433
Þriðjudaginn 12. maí 2026 10:42

Katrín Ásbjörns

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Ásbjörnsdóttir sérfræðingur Sýn í Bestu deild kvenna er nokkuð ósátt með ummæli sem Jón Óli Daníelsson þjálfari ÍBV lét falla eftir 2-0 sigur á Þór/KA á sunnudag.

Jón Óli var þá spurður út í meiðsli á lykilmanni liðsins, Allison Grace Lowrey. Sóknarmaðurinn knái fór af velli vegna meiðsla í leiknum á sunnudag.

Jón Óli sagði meiðsli hennar vera aftan í læri og í rassinum og talaði um að finna einhvern til að “nudda á henni blessað rassgatið.“

Katrín var spurð út í þessu ummæli í Bestu mörkunum í gær og hafði sitthvað að segja. „Þetta eru skrýtin ummæli, hann þarf að passa sig að mínu mati,“ sagði Katrín á Sýn í gær.

„Allt í lagi að tala um meiðsli, hann þarf ekki að fara alla leið með þetta. Hann þarf að gæta orða sinna.“

ÍBV eru nýliðar í Bestu deild kvenna en fara frábærlega af stað og eru með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Stórhuga Skagamenn með seðlana á lofti og virðast hvergi nærri hættir

Stórhuga Skagamenn með seðlana á lofti og virðast hvergi nærri hættir
433Sport
Í gær

Veltu fyrir sér stórleiknum á þriðjudag – Bara ein sviðsmynd sem kæmi á óvart

Veltu fyrir sér stórleiknum á þriðjudag – Bara ein sviðsmynd sem kæmi á óvart
433Sport
Í gær

Með skýr skilaboð til Arnars Gunnlaugs – „Ég er fastur á þeirri skoðun“

Með skýr skilaboð til Arnars Gunnlaugs – „Ég er fastur á þeirri skoðun“
433Sport
Í gær

Mikið undir á morgun – Hversu mikil áhrif hafa tvær vikur haft?

Mikið undir á morgun – Hversu mikil áhrif hafa tvær vikur haft?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Skorar á KSÍ og segir þeim að horfa til Englands

Skorar á KSÍ og segir þeim að horfa til Englands
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fjármálin einn stór farsi – „Ég botna ekki í því hvernig þetta rúllar“

Fjármálin einn stór farsi – „Ég botna ekki í því hvernig þetta rúllar“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Fyrir 2 dögum

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt