fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Barcelona svarar svakalegum ásökunum forseta Real Madrid í dag

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 12. maí 2026 21:00

Florentino Perez, forseti Real Madrid, Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Florentino Perez, forseti Real Madrid, lét þung orð falla um Barcelona og hið svokallaða Negreira-mál á blaðamannafundi í dag. Forsetinn sagði málið vera stærsta hneyksli í sögu fótboltans og fullyrti að Real Madrid hefði verið svipt allt að sjö Spánarmeistaratitlum vegna þess.

Negreira-málið snýst um greiðslur sem Barcelona greiddi fyrirtækjum tengdum Jose María Enriquez Negreira, varaformanni dómaranefndar, á árunum 2001 til 2018.

Samkvæmt rannsóknum námu greiðslurnar milljónum evra og hafa vakið grunsemdir um möguleg áhrif á dómgæslu í spænskum fótbolta. Barcelona hefur hins vegar ítrekað neitað öllum ásökunum um spillingu eða áhrif á dómara og segir greiðslurnar hafa verið fyrir ráðgjafaþjónustu.

Perez sagði á fundinum að Real Madrid væri nú að safna saman gögnum um það sem félagið telur hagstæða dómgæslu með Barcelona í gegnum tíðina. Gögnin eigi að senda til UEFA eftir tímabilið.

„Við munum berjast allt til enda í þessu máli,“ sagði Perez meðal annars.

Barcelona svaraði síðar með opinberri yfirlýsingu þar sem fram kom að lögfræðideild félagsins væri að fara yfir ummæli forseta Real Madrid og meta næstu skref.

„Við erum að greina yfirlýsingarnar og ásakanirnar vandlega áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið,“ sagði í yfirlýsingu katalónska félagsins.

Blaðamannafundur Perez í dag var viðburðaríkur, en hann boðaði til að mynda kosningar til að bjóða mönnum að bjóða sig fram gegn sér ef þeir telja sig geta sinnt starfinu betur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt