fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Hart er í heimi

Eyjan
Laugardaginn 28. mars 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hatrammur ófriður ríkti fyrir botni Miðjarðarhafs frá því í október 2023. Keimlíkar fréttir frá Gazaströndinni voru ráðandi í öllum fréttatímum. Svartklæddar grátandi konur bentu fréttamönnum á sundursprengd híbýli sín og særða ættingja. Ísraelsmenn voru sakaðir um að fremja þjóðarmorð sem þeir neituðu. Eftir mikil átök og hörmungar var loksins samið um brothætt vopnahlé á svæðinu.

Suður-Afríkumenn stefndu Ísraelsmönnum fyrir alþjóðadómstólinn í Haag fyrir stríðsrekstur sinn á Gaza. Nokkrar þjóðir lýstu yfir stuðningi við þessa málsókn en flestar nánustu bandalagsþjóðir okkar héldu að sér höndum. Það kom á óvart þegar utanríkisráðherra lýsti því yfir að litla Ísland ætlaði að taka þátt í þessum málarekstri.

Ég hitti Hallgrím Pétursson prest og sálmaskáld á dögunum í bókaverslun. Hann sagðist fagna þessari ákvörðun utanríkisráðherra. „Ég hef alltaf haft ímugust á Gyðingum eða Ísraelsmönnum.“ sagði hann. „Ástæðan er augljós!“

Nakinn Jesúm á jörðu
Júðar krossfestu þar.

Hann stundi þungan og bætti við: „Ég lá aldrei á skoðunum mínum varðandi innræti og eðli Gyðinga:“

Jesús þeim sýndi í sannri raun,
sálarheill, náð og frelsi.
Guðs syni Júðar guldu í laun
grimmd, hatur og fangelsi.

„Það á að draga þessa menn fyrir dóm eins og gert var við Krist forðum,“ sagði Hallgrímur mæðulega. „Nú er skollið á stríð í Íran,“ sagði ég. „Hvað finnst þér um yfirstandandi átök.?“ Hann sagðist styðja klerkastjórnina af öllu hjarta. „En hvað um kvennakúgun, hommahatur, morð á óbreyttum borgurum, einræði og lögregluofsóknir? Er þetta í lagi?“ sagði ég. „Já,“ svaraði Hallgrímur, „mestu máli skiptir að þeir eru andstæðingar Ísrael. Þeirra óvinir eru mínir vinir.“ Eða eins og ég segi í Passíusálmunum:

Hróp og háreysti gjörðu
heiðnir og Júðar þar
kringum krossinn á jörðu
með kalls, brigsl og háðungar.

Hallgrímur kvaddi stuttlega og var rokinn: „Ég er farinn á mótmælafund fyrir utan bandaríska sendiráðið,“ sagði hann, „síðan á ég tíma inni á Holdsveikraspítala í Lauganesi.“ „Hann er brunninn fyrir 80 árum,“ sagði ég, „er þér ekki farið að förlast, Grímur minn?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Nútímamegrun

Óttar Guðmundsson skrifar: Nútímamegrun
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Þankar um hnignun

Björn Jón skrifar: Þankar um hnignun
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Jón Gnarr skrifar: Dalalíf

Jón Gnarr skrifar: Dalalíf
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar: Málfarspistill

Björn Jón skrifar: Málfarspistill
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Jón Gnarr skrifar: Frelsi

Jón Gnarr skrifar: Frelsi
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Framtíðin var í gær

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Framtíðin var í gær
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Svarthöfði skrifar: Hvað er líkt með hagfræðingum og veðurfræðingum?

Svarthöfði skrifar: Hvað er líkt með hagfræðingum og veðurfræðingum?