
Eins og greint var frá fyrr í dag verður Harry Maguire ekki með í landsliðshóp Englands sem fer á HM í sumar.
Þetta eru kannski stærstu tíðindin en fleiri stór nöfn fá ekki kallið ef marka má frétt BBC. Þar er til að mynda liðsfélagi Maguire hjá Manchester United, Luke Shaw.
Shaw var valinn í 55 manna hóp Thomas Tuchel á dögunum menn eins og Dan Burn og Nico O’Reilly fá sennilega kallið fram yfir hann í 26 manna hópinn.
Phil Foden og Fikayo Tomori fá þá ekki kallið heldur, samkvæmt frétt BBC.
Einhverjir bíða spenntir eftir að sjá hvort þeir verði með, þar á meðal Noni Madueke. Samkvæmt fréttinni fær hann kallið, líkt og liðsfélagar hans í Arsenal, Declan Rice og Bukayo Saka.