fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
EyjanFastir pennar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi

Eyjan
Sunnudaginn 3. maí 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sú sem þetta skrifar hefur á undanförnum vikum, oftar en einu sinni, heyrt stjórnmálaskýrendur segja að Viðreisn muni mjög líklega verða í oddastöðu í borginni eftir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí. Oddviti Viðreisnar í borginni Björg Magnúsdóttir virðist að eðlisfari vera lífsglöð manneskja. Nú er hún enn brosmildari en áður á myndum sem birtast af henni í fjölmiðlum. Sem er bara ágætt og minnir á að æskilegt er að borgarstjóri sé kátur og glaðsinna einstaklingur. Það hefur nokkuð skort á það undanfarið hér í Reykjavíkurborg.

Fari eins og búist er við þá mun val Viðreisnar varla verða erfitt. Viðreisn setur það líklega ekki fyrir sig að vinna með Sjálfstæðisflokknum ef þess þarf, en ef Miðflokkurinn fylgir með í pakkanum þá hlýtur Viðreisn að hörfa og hlaupa fagnandi í átt til Samfylkingarinnar. Milli Viðreisnar og Miðflokksins grasserar óvild sem verður ekki löguð svo auðveldlega.

Spá stjórnmálaskýrenda um vald Viðreisnar er hluti af spennunni vegna kosninga sem almenningur sýnir engan áberandi áhuga. Fjölmiðlar reyna sitt til að minna á kosningarnar og kalla frambjóðendur í alls kyns umræðuþætti, sem oftast vekja ekki sérlega mikla athygli. Fjölmiðlar vilja líka vera með öðruvísi fréttir og þefa þá uppi tíðindi sem manni þykja svosem ekki ýkja merkileg, en geta samt verið skemmtileg. Eins og þegar oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri, var sögð hafa látið gervigreind skrifa fyrir sig grein.

Mann grunar að almenningur geri ekkert of mikið af því að lesa greinar eftir stjórnmálamenn, en þessi frétt var allavega til þess fallin að vekja athygli á grein bæjarstjórans. Sú sem þetta skrifar las greinina, einungis vegna umfjöllunar sem hún fékk. Þetta er ansi vond grein, uppfull af klisjum sem hljóma eins og þær séu úr slappri sjálfshjálparbók. Bara innihaldslaus froða.

Bæjarstjórinn í Kópavogi segist sjálf hafa skrifað greinina með örlítilli hjálp frá gervigreindinni. Sé það svo eru það ekki meðmæli með bæjarstjóranum sem hefði átt að láta smekkvísa og gagnrýna yfirlesara dæma um skrifin. Hefði allt verið með felldu hefðu þeir gefið bæði bæjarstjóranum og gervigreindinni falleinkunn og bent á að nauðsynlegt væri að skrifa aðra grein og betri. Ef greinin var svo alfarið skrifuð af gervigreind þá eru það heldur ekki meðmæli með bæjarstjóranum að hafa stolt sett nafn sitt við svo arfaslappa afurð.

Ásdís komst aftur í sviðsljósið þegar hún potaði í Jónas Má Torfason, oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi, í þjóðmálaþættinum Sprengisandi á Bylgjunni. Fjölmiðlar voru fljótir að kveikja á því að potið væri efni í frétt og birt var skjáskot þar sem Ásdís sást pota í Jónas Má. Það varð líka að frétt þegar Jónas Már tilkynnti daginn eftir að sér hefði ekki orðið meint af potinu.

Þátttaka í þættinum Af vængjum fram á Sýn getur líka orðið að vel lesinni frétt. Þar gæða oddvitar flokkanna sér á missterkum kjúklingavængjum meðan þeir svara persónulegum spurningum þáttastjórnandans, sem er hinn mjög svo geðþekki Oddur Ævar Gunnarsson. Svör oddvitanna hafa endað sem áberandi frétt á visir.is. Eins og þegar Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, upplýsti að hún hefði á árum áður stöðvað ástarleiki íbúa á Hrafnistu þegar hún vann þar. Í sama þætti viðurkenndi Björg Magnúsdóttir að hafa eitt sinn ælt á trefil vinkonu sinnar þegar hún var á djamminu.

Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, á víst eftir að mæta í þáttinn og sömuleiðis Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins. Hvaða syndir munu þeir játa á sig og munu þær komast á lista yfir mest lesnu fréttirnar þann daginn? Við bíðum spennt.

Áðurnefndar fréttir af frambjóðendum eru vissulega tilbreyting frá þurrum pólitískum fréttum, eins og þrasi um bókhald borgarinnar, sem óbreyttir borgarar botna flestir afar lítið í. Sú sem þetta skrifar er þó varla sú eina sem kýs bitastæða og kraftmikla pólitík, en það hefur ekki verið sérlega mikið af henni í kosningabaráttunni. Flokkarnir hafa það sér til afsökunar að þeir eru að undirbúa sig fyrir stuttan en harðan endasprett og ætla að gefa allt í hann. Þeir hefðu mátt byrja fyrr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Kosningar unga fólksins

Thomas Möller skrifar: Kosningar unga fólksins
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Viðhaldsframkvæmdir í fjöleignarhúsum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Viðhaldsframkvæmdir í fjöleignarhúsum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Nína Richter skrifar: Eru hljóðbækur fyrir ólæsa sauði?

Nína Richter skrifar: Eru hljóðbækur fyrir ólæsa sauði?
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Nína Richter skrifar: Þessi bar er skíðalaust rými

Nína Richter skrifar: Þessi bar er skíðalaust rými
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael