fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
EyjanFastir pennar

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Uppsögn ótímabundinna leigusamninga

Eyjan
Sunnudaginn 26. apríl 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leigusamningar eiga að vera skriflegir og geta þeir verið tímabundnir eða ótímabundnir, þ.e. gerðir til ákveðins tíma eða ekki. Ef aðilar hafa vanrækt að gera skriflegan leigusamning teljast þeir hafa gert ótímabundinn leigusamning. Ef segja á upp slíkum munnlegum leigusamningi þá gilda sömu reglur um þá og um uppsögn á skriflegum ótímabundnum leigusamningi.

Leigusali getur einungis sagt upp ótímabundnum leigusamningi um íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði sem leigt er til íbúðar í ákveðnum tilvikum er tilgreind eru í 55. gr. a. húsaleigulaga og ættu þeir að kynna sér ákvæðið svo þeir eigi það ekki á hættu að verða bótaskyldir.

Þarf leigusali að tilgreina ástæðu uppsagnar og nota stöðluð tilkynningareyðublöð HMS við uppsögnina.

Ef leigjandi telur að skilyrði til uppsagnarinnar séu ekki fyrir hendi getur hann borið ágreining um uppsögnina undir kærunefnd húsamála.

Þá getur leigusali orðið bótaskyldur ef uppsögnin er ólögmæt, þ.e. ef hann hefur sagt leigjandanum upp án þess að eitthvað af þeim skilyrðum sem lögin kveða á um að þurfi að vera til staðar séu fyrir hendi. Þannig er leigusala t.d. ekki heimilt að segja upp leigjanda ef hann vill frekar leigja vinkonu sinni íbúðina sína.

Uppsögn á að vera á skrifleg og send með sannanlegum og tryggilegum hætti.

Uppsagnarfrestur telst hefjast fyrsta dag næsta mánaðar eftir að uppsögn var send og þarf leigjandi að hafa lokið rýmingu og frágangi hins leigða eigi síðar en kl. 13.00 næsta dag eftir að uppsagnarfresti lauk.

Ef leigusali hefur t.d. sagt leigjanda upp því hann var að selja íbúðina og á að afhenda kaupanda íbúðina við lok uppsagnarfrests, en leigjandinn fer ekki út, þarf að fara í útburðarmál. Það getur tekið nokkra mánuði. Á meðan getur kaupandinn ekki flutt inn.

Þegar um er að ræða tímabundinn leigusamning um íbúðarhúsnæði, en íbúðarhúsnæði telst hvert það húsnæði þar sem fjölskylda getur haft venjulega heimilisaðstöðu, þá er uppsagnarfrestur sex mánuðir af hálfu beggja. Ef leigusalinn er hins vegar lögaðili sem í atvinnuskyni leigir út viðkomandi íbúðarhúsnæði og leigjandinn hefur haft það á leigu lengur en tólf mánuði er uppsagnarfrestur af hálfu leigusala tólf mánuðir.

Að lokum er vert að minna leigusala á að skrá leigusamninga um íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði sem leigt er til íbúðar í leiguskrá húsnæðisgrunns HMS að öðrum kosti geta þeir átt von á sektum.

Höfundur er lögmaður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Þankar í tilefni af umsögn landskjörstjórnar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Þankar í tilefni af umsögn landskjörstjórnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra páskaeggjadramað

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra páskaeggjadramað
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Nína Richter skrifar: Þessi bar er skíðalaust rými

Nína Richter skrifar: Þessi bar er skíðalaust rými
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Nútímamegrun

Óttar Guðmundsson skrifar: Nútímamegrun
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Björn Jón skrifar: Þankar um hnignun

Björn Jón skrifar: Þankar um hnignun
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Jón Gnarr skrifar: Dalalíf

Jón Gnarr skrifar: Dalalíf