fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Fókus

Hvað kom fyrir sjónvarpsstjörnuna? – Óþekkjanlegur og með pípararauf á nýjum myndum

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 21. maí 2026 07:30

Miður skjallandi myndir birtust af sjónvarpsstjörnunni fyrrverandi. Skjáskot/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýjar ljósmyndir sem birtar voru af leikaranum David Caruso hafa skotið fólki skelk í bringu. Sjónvarpsstjarnan sem heillaði fólk í lögguþáttum á tíunda áratugnum og í upphafi aldarinnar er gjörbreyttur. Á einni myndinni skartar hann flennistórri „pípararauf“.

Caruso hóf leikferil sinn í kvikmyndum á níunda áratugnum en sló í gegn í lögguþáttunum NYPD Blue um miðjan tíunda áratuginn. Í upphafi aldarinnar náði hann svo miklum vinsældum sem lögreglumaðurinn Horatio Caine í þáttunum CSI: Miami.

Það hlutverk lék hann í tíu ár, eða þar til ársins 2012 þegar framleiðslan hætti. En þá setti Caruso einnig punkt aftan við feril sinn sem leikari.

Caruso sló í gegn sem Horatio Caine í þáttunum CSI: Miami. Mynd/Getty

Síðan þá hefur Caruso látið lítið fyrir sér fara og sést sjaldan á blaðsíðum glanstímaritanna. Þess í stað hefur hann gerst listmunasafnari og opnaði fatabúð í Miami sem kallast Steam of Sunset.

Eins og segir í frétt The Daily Mail hefur Caruso margoft verið boðin hin ýmsu hlutverk eða störf við kvikmynda eða þáttagerð undanfarin ár en ávallt hefur hann hafnað tilboðunum. Virðist sem svo að hann sé sáttur við hið rólega líf utan glamúrsins sem fylgir Hollywood.

Caruso er nú orðinn 70 ára gamall og eins og sést á myndunum er hann farinn að grána vel í vöngum. Þá virðist hann lítt umhugað um fyrri ímynd sína sem harðjaxl þar sem á einni myndinni má sjá hann með væna pípararauf.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þriggja metra háir ísjakar í brottfararverslun

Þriggja metra háir ísjakar í brottfararverslun
Fókus
Fyrir 5 dögum

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið
Fókus
Fyrir 5 dögum

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“