
Harry Maguire er á meðal þeirra sem verða ekki í landsliðshópi Englands á HM, en Thomas Tuchel tilkynnir hópinn á morgun.
Maguire staðfesti sjálfur tíðindin á Instagram og kveðst niðurlútur, enda verið lykilmaður í landsliðinu lengi og hefur hann verið frábær fyrir Manchester United eftir áramót.
„Ég er miður mín. Ég var sannfærður um að ég gæti spilað stórt hlutverk fyrir landsliðið í sumar eftir tímabilið sem ég átti. Ég óska strákunum alls hins besta,“ skrifaði varnarmaðurinn.
England hefur leik á HM 17. júní gegn Króatíu.