fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

66°Norður og Slysavarnafélagið Landsbjörg hanna húfu sem nýja leið í fjáröflun björgunarsveitanna

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 20. febrúar 2024 17:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

66°Norður og Slysavarnafélagið Landsbjörg kynna nú til sögunnar Landsbjargarhúfuna, hannaða af 66°Norður í samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörg. Markmiðið var að hanna sterka, hlýja og endingargóða húfu með þarfir björgunarsveitarfólks í huga. Húfan er ekki síður hugsuð fyrir  almenning til að nota allan ársins hring í útivist. Húfan er úr merino ullarblöndu og því sérstaklega hlý og mjúk. 

Innblástur fyrir mynstur Landsbjargarhúfunnar er hálendi Íslands og fjallagarðar landsins. Mynstrið er unnið út frá loftmynd af fjallaskaga á norðanverðu Íslandi. Loftmyndin var tekin árið 1999, sama ár og Slysavarnafélag Íslands og Landsbjörg sameinuðust og til varð Slysavarnafélagið Landsbjörg.

Húfan fer í sölu í verslunum 66°Norður og vefverslun Slysavarnafélagsins Landsbjargar og 66°Norður í dag og kemur í takmörkuðu upplagi. Verðið á húfunni er 7.900 kr. og rennur ágóðinn  af sölu húfunnar til styrktar Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Með glóðarauga á báðum augum og nefbrot eftir árás á Hverfisgötu

Með glóðarauga á báðum augum og nefbrot eftir árás á Hverfisgötu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“