
Ríkisfjölmiðill Norður-Kóreu greinir frá þessu að því er fram kemur í frétt AP-fréttaveitunnar.
Átti gjöfin að vera til marks um vináttu leiðtoganna tveggja og gott samband Rússlands og Norður-Kóreu. Efnahagsþvinganir eru í gildi gagnvart Norður-Kóreu vegna kjarnorkuáætlunar yfirvalda og kemur fram í frétt AP að gjöfin gæti verið brot á samþykktum Sameinuðu þjóðanna.
Í frétt AP kemur fram að Kim Yo Jong, systri einræðisherrans, og annar ónafngreindur embættismaður, hafi veitt gjöfinni viðtöku á sunnudag.
Norður-Kórea og Rússland hafa átt í ríkum samskiptum síðustu mánuði, eða allt síðan Kim heimsótti Rússland í september á síðasta ári og hitti þar meðal annars Pútín.
Í þeirri heimsókn fékk Kim meðal annars að setjast aftur í Aurus Senat-limmósínu Pútíns en um er að ræða fyrstu lúxusbílategundina sem framleidd er í Rússlandi.
Kim Jong-un er mikill bílaáhugamaður og er hann sagður eiga glæsilegt safn lúxusbifreiða, meðal annars frá Evrópu, sem smyglað hefur verið til landsins.