fbpx
Föstudagur 19.desember 2025
Fréttir

Vesturlönd eiga mjög öflugt vopn gegn Rússlandi – Þora þau að nota það?

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 10. janúar 2024 07:00

Mynd/AFP

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lengi hefur því verið velt upp hvort Vesturlönd eigi að grípa til eins öflugasta vopnsins sem þau eiga til að beita gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Stóra spurningin er hvort þau þora að beita vopninu því afleiðingarnar geta orðið algjörlega ófyrirsjáanlegar.

Þetta vopn eru 300 milljarðar dollara sem Vesturlönd hafa lagt hald á, peningar sem Rússar eiga. Reuters segir að 207 milljarðar séu í evrum, 67 milljarðar í dollurum og 37 milljarðar í breskum pundum auk annarra gjaldmiðla og skuldabréfa.

Hugmyndir hafa verið uppi um að veita Úkraínu aðgang að þessum fjármunum til að kaupa vopn og til að kosta uppbygginguna í landinu þegar stríðinu er lokið.

Rússar hafa ekki tekið þessum hugmyndum vel og hefur Dmitry Peskov, talsmaður Vladímír Pútíns forseta, sagt að Rússar muni hefna sín ef Vesturlönd láta Úkraínu fá þessa peninga. „Ef einhverjar af eigum okkar eru gerðar upptækar, munum við skoða hvað við getum haldlagt og við munum gera það samstundis,“ sagði hann nýlega.

Úkraínumenn gætu eflaust notað þessa 300 milljarða dollara en upphæðin er fjórum sinnum hærri en nemur stuðningi Bandaríkjanna við þá síðan stríðið hófst.

En það er ekki einfalt mál að láta einu ríki haldlagða fjármuni í eigu annars ríkis í té. Rússar hafa gert Vesturlöndum ljóst að þeir munu berjast gegn slíkri aðgerð fyrir dómstólum en einnig geta þeir hugsanlega gert Vesturlöndum, með Bandaríkjunum í fararbroddi, stóra skráveifu.

Robert Shiller, hagfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi, ræddi þetta nýlega við ítalska dagblaðið La Repubblica og sagði það siðferðilega rétt að láta Úkraínumenn fá peningana en Bandaríkjamenn þurfi að hugsa sig vel um því margt sé óljóst um afleiðingarnar ef þetta verður gert.

Eitt af því sem gæti gert Vesturlöndum, sérstaklega Bandaríkjunum stóra skráveifu, er gildi dollarans sem öruggs gjaldmiðils. „Ef Bandaríkin beita þessari aðferð gegn Rússum núna . . . þá geta þeir gert það sama gegn öðrum. Þetta myndi eyðileggja þá öryggistilfinningu sem umlykur dollarann og þetta væri fyrsta skrefið í afdollaravæðingunni sem margir halla sér að með vaxandi sjálfsöryggi, allt frá Kína til þróunarríkja og auðvitað Rússland,“ sagði Shiller.

Þetta þýðir einfaldlega að staða dollarans sem alheimsgjaldmiðils, sem er öruggur, gæti verið að veði og þar með einn af máttarstólpum valda Bandaríkjanna á heimsvísu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Fóru ekki að lögum í máli hælisleitanda – Talsmaður sinnti ekki kærubeiðni

Fóru ekki að lögum í máli hælisleitanda – Talsmaður sinnti ekki kærubeiðni
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Opinbera dánarorsök Rob Reiner og eiginkonu hans

Opinbera dánarorsök Rob Reiner og eiginkonu hans
Fréttir
Í gær

Móðir ófeðraðs barns forvitnaðist um réttindi sín en fékk rangar upplýsingar – Uppgötvaði hið rétta 14 árum síðar

Móðir ófeðraðs barns forvitnaðist um réttindi sín en fékk rangar upplýsingar – Uppgötvaði hið rétta 14 árum síðar
Fréttir
Í gær

Lenti í óvæntu veseni eftir setu í stjórn foreldrafélags með háttsettum einstaklingi

Lenti í óvæntu veseni eftir setu í stjórn foreldrafélags með háttsettum einstaklingi
Fréttir
Í gær

Súlunesmálið: Leituðu til miðils og tónlistarmanns til að sefa ofsa Margrétar

Súlunesmálið: Leituðu til miðils og tónlistarmanns til að sefa ofsa Margrétar
Fréttir
Í gær

Mannslát á Kársnesi: Lögregla óskar eftir aðstoð almennings

Mannslát á Kársnesi: Lögregla óskar eftir aðstoð almennings