fbpx
Fimmtudagur 11.desember 2025
Fréttir

Eiginmaður framkvæmdastjóra þingflokks Vinstri grænna keypti í Íslandsbanka

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 10. apríl 2022 10:27

Ásmundur Tryggvason, Anna Lísa Björnsdóttir og Edda Hermannsdóttir. Mynd/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásmundur Tryggvason, eiginmaður Önnu Lísu Björnsdóttur sem er framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna, er einn þeirra sem keyptu í lokuðu útboði á hlutum ríkisins í Íslandsbanka á dögunum. Anna Lísa hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir flokkinn í gegn um árin.

Ásmundur er framkvæmdastjóri fyrirtækja og fjárfesta hjá bankanum. Hann keypti 96.108 hluti í útboðinu á 11,2 milljónir króna.

Upplýsingar um kaup Ásmundar urðu opinber með tilkynningu Íslandsbanka til Kauphallarinnar þann 23. mars þar sem um innherja er að ræða.

Þá var sömuleiðis tilkynnt um tvo aðra innherja en annar þeirra er Ríkharður Daðason, fagfjárfestir og fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta, en ástæða tilkynningarinnar er sú að hann er í sambúð með Eddu Hermannsdóttur, markaðs- og samskiptastjóra Íslandsbanka. Ástæða tilkynningar um kaup Ásmundar er staða hans innan bankans.

Anna Lísa keypti sjálf hlut í Íslandsbanka á síðsta ári daginn eftir að opnu hlutafjárútboði lauk, eins og kemur fram í tilkynningu bankans til Fjármálaeftirlitsins um „viðskipti fjárhagslega tengds aðila“ en þar segir að Anna Lísa sé fjárhagslega tengd fruminnherja, sem er eiginmaður hennar, en hann starfaði þá einnig hjá Íslandsbanka. Anna Lísa keypti þá 12.658 hluti og hvern hlut á verðinu 79.

Reis upp úr rústum Glitnis

Í tilkynningu frá Bankasýslunni var söluferlinu lýst sem tilboðsfyrirkomulagi þar sem „hæfum innlendum og erlendum fjárfestum, þ.e. fagfjárfestum og viðurkenndum gagnaðilum“, var boðið að taka þátt í.

Nú þegar nöfn allra kaupenda hafa verið birt er ljóst að þetta var ekki raunin og telur hagfræðingur sem vann að rannsóknarskýrslu Alþingis að lög hafi verið brotin með fyrirkomulagi sölunnar. Sem kunnugt er reis Íslandsbanki upp úr rústum Glitnis sem var fyrsti bankinn til að falla í bankahruninu 2008 og ýmis þekkt nöfn úr hruninu koma við sögu þegar listi yfir kaupendur er skoðaður.

Dyggur stuðningsmaður Bjarna

Hávær mótmæli fóru fram á Austurvelli vegna sölunnar í gær og síðustu daga hefur verið tekist á um söluna á Alþingi. Ýmsir þingmenn Vinstri grænna, eins af þriggja ríkisstjórnarflokka, hafa þar gagnrýnt fyrirkomulag sölunnar og viljað skella skuldinni á Bankasýslu ríkisins. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, skipar stjórn Bankasýslunnar en formaður hennar, Lárus H. Blöndal, er mikill stuðningsmaður Bjarna og skrifað til að mynda grein í Morgunblaðið til að ítreka mannkosti Bjarna í aðdraganda alþingiskosninganna 2013.

Vinstri græn benda á Bankasýsluna

Þingmenn Vinstri grænna hafa síðan viljað skella skuldinni á klúður við framkvæmd sölunnar á Bankasýsluna.

Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vinstri grænna, sagði í þættinum Vikulokin á Rás 1: „Mér finnst full ástæða til að velta við öllum steinum í þessu, það hafa þingflokksformenn hinna stjórnarflokkanna líka sagt. Fyrir mér virðist vera sem Bankasýslan hafi klúðrað málum.“

Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, segir í aðsendri grein á Vísir.is: „Trúverðugleiki Bankasýslu ríkisins hefur beðið hnekki og það myndi auðvelda stofnunni að endurheimta traust ef forstjóri og stjórn hennar myndu víkja.“

Engin rannsóknarnefnd

Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna og nefndarmaður í efnahags- og viðskiptanefnd, sagði í kvöldfréttum RUV í gær að listi yfir kaupendur í Íslandsbanka hafi komið á óvart. „Eins og ég skildi þetta þá var lagt upp með það að það myndu stórir kjölfestufjárfestar fjárfesta í bankanum. Þegar listinn var birtur, þá kom önnur mynd upp.“

Stjórnarandstaðan hefur farið fram á að sett verði á laggirnar sérstök rannsóknarnefnd á vegum Alþingis til að skoða söluferlið, nefnd með meiri heimildir en Ríkisendurskoðun. Þetta samþykktu ríkisstjórnarflokkarnir hins vegar ekki, ekki heldur Vinstri græn, og vilja halda sig við að Ríkisendurskoðun taki málið fyrir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Sauð upp úr á heimili sambýliskvenna í Kópavogi

Sauð upp úr á heimili sambýliskvenna í Kópavogi
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Áhugavert að fylgjast með viðbrögðum Íslendinga – 70 prósent þjóðarinnar í ofþyngd

Áhugavert að fylgjast með viðbrögðum Íslendinga – 70 prósent þjóðarinnar í ofþyngd
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Skotin flugu eftir færslu Sigmars: „Enginn brjálaður hérna, nema kannski forseti þingsins“

Skotin flugu eftir færslu Sigmars: „Enginn brjálaður hérna, nema kannski forseti þingsins“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Íslensk börn getin með sæði úr dönskum gjafa með lífshættulega genastökkbreytingu

Íslensk börn getin með sæði úr dönskum gjafa með lífshættulega genastökkbreytingu
Fréttir
Í gær

Dauðsfallið á Kársnesi: Maðurinn látinn laus úr gæsluvarðhaldi

Dauðsfallið á Kársnesi: Maðurinn látinn laus úr gæsluvarðhaldi
Fréttir
Í gær

Segir þetta stærsta réttlætismál næstu ára – „Til konunnar sem þurfti að gefa barnið sitt í burtu“

Segir þetta stærsta réttlætismál næstu ára – „Til konunnar sem þurfti að gefa barnið sitt í burtu“
Fréttir
Í gær

Styrktarátak Nettó skilar 5,5 milljónum króna til Ljóssins

Styrktarátak Nettó skilar 5,5 milljónum króna til Ljóssins
Fréttir
Í gær

Guðmundur Ingi í veikindaleyfi – Þarf að gangast undir hjartaaðgerð

Guðmundur Ingi í veikindaleyfi – Þarf að gangast undir hjartaaðgerð