fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Pressan

Fyrsti fréttamannafundur Biden – Lofaði hraðari bólusetningu og gagnrýndi Kína

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 26. mars 2021 06:55

Joe Biden. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joe Biden hélt fyrsta fréttamannafund sinn, frá því að hann tók við forsetaembætti, í gær en þá voru 64 dagar liðnir frá embættistökunni. Svona lengi hefur enginn Bandaríkjaforseti látið fréttamenn bíða eftir fyrsta fréttamannafundinum í 100 ár hið minnsta. Biden ræddi eitt og annað á fundinum sem stóð í um 90 mínútur. Hann lofaði til dæmis hraðari bólusetningum fyrir Bandaríkjamenn og gagnrýndi Kína. Hann opnaði einnig á möguleikann á að hann muni sækjast eftir endurkjöri 2024.

Það þarf ekki að koma á óvart þó umræða um heimsfaraldur kórónuveirunnar hafi verið fyrirferðarmikil á fundinum því ástandið vegna veirunnar hefur lengi verið slæmt í Bandaríkjunum. En það er farið að ganga betur að bólusetja en áður og nú eru um 2,5 milljónir skammta af bóluefni gefnir á dag. Fjórði hver Bandaríkjamaður hefur nú fengið að minnsta kosti fyrri skammt bóluefnis. Þegar Biden tók við embætti hét hann því að búið yrði að gefa 100 milljónir skammta á fyrstu 100 dögum hans í embætti. Það markmið náðist fyrir nokkrum dögum eða þegar hann var búinn að vera 58 daga í embætti. Í gær sagði hann að nýja markmiðið væri 200 milljónir skammta á fyrstu 100 dögunum.

Þegar hann var spurður hvort hann muni gefa kost á sér til endurkjörs 2024 hikaði hann aðeins en sagði síðan að það væri ætlunin og hann vænti þess. „En ég virði örlögin. Ég hef aldrei geta skipulagt neitt þrjú og hálft ár fram í tímann,“ sagði hann en ef hann gefur kost á sér á nýjan leik verður hann orðinn 82 ára.

Þegar hann var spurður hvort hann ætti þá von á því að takast á við Donald Trump á nýjan leik var svarið: „Ég veit ekki einu sinni hvort Repúblikanaflokkurinn verður til þá.“

Biden leggur áherslu á mál sitt í gær. Mynd:EPA

Hann var einnig spurður út í fyrirætlanir Repúblikana um að þrengja kosningalögin í mörgum ríkjum en það telja Demókratar vera gert til að gera minnihlutahópum erfiðara fyrir með að kjósa. Biden er ekki par hrifinn af þessum fyrirætlunum: „Þetta er sjúkt. Það er tillaga um að banna að fólki sé fært vatn þegar það bíður í röð á kjörstað. Þetta er sjúkt.“

Eitt af heitustu málefnunum á fundinum var straumur innflytjenda að landamærunum við Mexíkó. Reiknað er með að fjöldi ólöglegra innflytjenda verði mikill í ár, sá mesti í 20 ár. Gagnrýnendur hafa sagt að þetta sé vegna þess að Biden hafi slakað á stefnunni í innflytjendamálum og að margir innflytjendur telji að Biden muni taka á móti þeim opnum örmum. En Biden var ekki alveg sammála þessu. „Mér líkar við hugsunina um að þeir komi af því að ég sé góður maður. En nei, þetta tengist árstímanum og mörgum pólitískum vandamálum í Mið- og Suður-Ameríku.“

Á fundinum kom skýrt fram að stjórn Biden er með harða stefnu í garð Kína. Antony Blinken, utanríkisráðherra, hefur margoft lýst yfir áhyggjum af stefnu Kína í garð Taívan og veru kínverska hersins nærri eyjunni. Biden tók í sama streng á fundinum án þess að nefna nein sérstök dæmi. Hann ræddi til dæmis um mikilvægi þess að Bandaríkin og ESB standi saman gegn Kína. „Þetta er val á milli einræðis og lýðveldis. Ég hef þekkt Xi Jinping (forseta Kína, innsk. blaðamanns) lengi. Það er ekki vottur af lýðræði í beinum hans en hann er snjall,“ sagði hann.

Hann kom einnig inn á málefni Norður-Kóreu og sagðist hafa áhyggjur af eldflaugaskotum einræðisríkisins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Líkamsrækt gæti snúið öldrunarferlinu við

Líkamsrækt gæti snúið öldrunarferlinu við
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lömuð fyrir neðan háls eftir að hafa borðað súpu úr niðursuðudós

Lömuð fyrir neðan háls eftir að hafa borðað súpu úr niðursuðudós
Pressan
Fyrir 5 dögum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir
Pressan
Fyrir 5 dögum

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað
Pressan
Fyrir 6 dögum

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta