
Lögreglan á Norðurlandi eystra hætti rannsókn á kæru vegna nauðgunar á Akureyri en sendi til embættis héraðssaksóknar mál er varðar brot gegn kynferðislegri friðhelgi.
Þetta staðfestir Skarphéðinn Aðalsteinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Norðurlandi eystra, í samtali við DV.
„Þetta snýst um myndbirtingu,“ segir Skarphéðinn, um þann hluta málsins sem er kominn á borð héraðssaksóknara, sem mun taka ákvörðun um ákæru. „Þetta er svona einn angi af þessu máli,“ bætir hann við.
Segir Skarphéðinn að það sé álit ákærusviðs lögreglunnar að kæra um nauðgun sé ekki líkleg til sakfellis miðað við gögn málsins. Hann bendir á að þessi ákvörðun sé kæranleg til ríkissaksóknara, sem gæti þá eftir atvikum fyrirskipað lögreglu að halda áfram rannsókn á nauðgunarhluta málsins.
Málið hefur vakið mikla athygli, ekki síst eftir að greint var frá því í fjölmiðlum að einn sakborninga væri áhrifavaldurinn Kleini, Kristján Einar Sigurbjörnsson. Hann sá sig knúinn til að birta yfirlýsingu á Instagram-síðu sinni þar sem hann lýsti yfir sakleysi í málinu.
Um tíma voru grunaðir í málinu taldir vera þrír en ljóst er að a.m.k. þrír menn voru kallaðir til yfirheyrslu hjá lögreglu. Nafn manns var að ósekju bendlað við meint brot á samfélagsmiðlum en lögregla yfirheyrði hann þó að konan hefði ekki sakað um brot. Eva Hauksdóttir, réttargæslumaður brotaþola í málinu, segir að konan hafi ekki verið viss um nöfn meintra gerenda og því hafi lögregla yfirheyrt þá sem voru á vettvangi. Stúlkan hafi sakað tvo menn um brot gegn sér. Fyrir liggur að annar þessara manna er Kleini.
„Allir sem vitað var að voru á staðnum fengu stöðu grunaðra, en það voru tveir sem hún telur að hafi brotið gegn sér,“ segir Eva.
Eva segir að skjólstæðingur hennar hafi ekki tekið ákvörðun um hvort hún kæri til ríkissaksóknara ákvörðun lögreglunnar um að hætta rannsókn á nauðgun. Kærufrestur er einn mánuður.
Eva segir að sannanir um brot gegn kynferðislegri friðhelgi séu sterkar og býst hún við ákæru og sakfellingu í þeim hluta málsins. Segir hún að einn sakborningur sé sakaður um þetta brot, sem snerist um birtingu á myndbandi frá vettvangi. Hún vill ekki gefa upp nafn þess sakbornings og liggur því ekki fyrir hvort það er Kleini.
„Ég get ekki sagt þér meira en að það er einn sakborningur grunaður um það,“ segir Eva.