fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Deilur Trump við Kanada koma sér illa fyrir bandarískar landamæraverslanir

Pressan
Mánudaginn 20. apríl 2026 07:00

Trump fer sínar eigin leiðir og efnir til illinda við allt og alla.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump virðist ekki geta komist í gegnum heilan dag án þess að efna til illinda við einhvern eða eitthvað land. Eitt af löndunum sem hann stendur í illdeilum við er Kanada en þessi tvö nágrannaríki hafa áratugum saman átt í góðum samskiptum en nú er allt frosið.

Ummæli og aðgerðir Trump hafa hrundið þróun af stað sem er nú farið að gæta af krafti í litlum bandarískum bæjum við kanadísku landamærin.

Onet skýrir frá þessu og segir að í Washingtonríki berjist litlar verslanir, landamæraverslanir, nú fyrir lífi sínu. Áður fyrr streymdu Kanadabúar yfir landamærin til að versla ódýrt í þessum verslunum en nú eru þeir að mestu hættir því.

Einn verslunareigandi skóf ekki utan af hlutunum og sagði einfaldlega: „Það er steindautt.“

Tölurnar staðfesta þessa þróun. Ef ferðir bíla, sem eru skráðir í Kanada, yfir landamærin eru skoðaðar sést að þeim hefur fækkað um þriðjung miðað við það sem var áður en Trump efndi til illinda við Kanada.

Ferðamannastaðir og ferðamannabæir finna einnig fyrir þessu því hótelgestum hefur fækkað, ferjuferðum hefur verið fækkað vegna færri farþega og verslanir hafa misst mikilvægustu viðskiptavini sína.

Í Kanada eru viðbrögð almennings einnig greinileg. Margir sniðganga meðvitað bandarískar vörur og kaupa þess í stað kanadískar vörur. Þetta snýst ekki lengur um verð í huga fólks, þetta snýst um að taka afstöðu.

Fyrir utan efnahagslegu áhrifin þá hefur þetta áhrif á fólk og sambönd fólks þvert á landamæri. Fjölskyldur, vinir og fyrirtæki, sem fóru áður yfir landamærin eða störfuðu þvert á þau, gera það ekki lengur.

Landamærin, sem voru áður ein þau opnustu og vinsamlegustu í heiminum eru nú mun lokaðri og tortryggni og óöryggis gætir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Í gær

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið