
Ungur maður í Hafnarfirði óttast verulega um velferð hundsins síns eftir að hafa sent hann tímabundið í pössun til manns sem átti hundinn áður. Segist hann hafa reynt að endurheimta hundinn en án árangurs en maðurinn fullyrði nú að hann sé ekki með hundinn heldur vinur hans en gefi þó takmarkaðar upplýsingar um umræddan vin. Ungi maðurinn segir lögregluna og Matvælastofnun sýna seinleg og takmörkuð viðbrögð vegna málsins og hann sé að hugleiða í fullri alvöru að taka lögin í sínar hendur til að endurheimta hundinn sem hann hefur ekki hugmynd um hvort að sé óhultur.
Óðinn Örn Eybekk Valdimarsson hefur vakið athygli á leit sinni að hundinum á samfélagsmiðlum og var reiðubúinn að deila reynslu sinni með DV.
Hundur Óðins Arnar heitir Mosi og er fjögurra og hálfs árs gamall og er nokkuð stór en hann er blanda af tegundunum Bull Mastif og Boxer.
Óðinn segir í samtali við DV að hann og fjölskylda hans hafa fengið Mosa úr goti, árið 2021, en faðir Mosa hafi á þeim tíma verið í eigu móður hans en bróðir Óðins sé skráður fyrir þeim hundi í dag. Óðinn var þar með fyrsti eigandi Mosa en þegar Mosi kom í heiminn var Óðinn enn á táningsaldri. Hins vegar þegar breytingar urðu á högum fjölskyldunnar undir lok árs 2022 varð hún að láta Mosa frá sér.
Óðinn segir að umræddur maður hafi þá boðist til að taka Mosa að sér en á þeim tíma bjó maðurinn með konu og voru þau eigendur Mosa þar til að sambandi þeirra lauk fyrir nokkru og spurðu þau þá Óðinn hvort hann væri tilbúinn til að taka aftur við Mosa. Óðinn var til í það og tók þá við Mosa sem var í kjölfarið skráður á Óðinn og er hann enn skráður eigandi Mosa og samkvæmt örmerkjaskráningu í gagnagrunninum Dýrauðkenni er Óðinn sannarlega skráður eigandi Mosa.
Hins vegar greindist móðir Óðins með krabbamein og fékk í kjölfarið, vegna áhrifa krabbameinslyfja, óþol fyrir Mosa og því stóð fjölskyldan í raun aftur frammi fyrir því að neyðast til að láta hundinn frá sér. Ákveðið var hins vegar að áðurnefndur fyrri eigandi myndi taka aftur við Mosa tímabundið á meðan móðir Óðins væri í meðferðinni og væri að ná betri heilsu og styrkja ónæmiskerfi sitt.
Mosi fór í pössunina til síns fyrri eiganda fyrir mánuði síðan. Eftir það sendi áðurnefnd fyrrverandi kona mannsins Óðni skilaboð og sagði að fyrrverandi maðurinn hennar væri „dottinn í það.“ Óðinn segist hafa sent manninum skilaboð fyrir tveimur vikum og beðið um að fá Mosa aftur en hann hafi sagst hafa farið með hundinn út í sveit en væri væntanlegur aftur. Hafi maðurinn sagt að ekki ætti að taka mark á orðum fyrrverandi konu sinnar en síðan þá hafi illa gengið að ná sambandi við hann og fá skýr svör um hvar Mosi sé niðurkominn.
Óðinn segir manninn vegar hafa birst á vinnustað bróður síns og krafið hann um greiðslu skuldar bróðurins við vinkonu mannsins. Óðinn og bróðir hans segja báðir þá meintu skuld eiga sér enga stoð í raunveruleikanum en maðurinn og vinkonan hafi komið því á framfæri að Mosa yrði ekki skilað fyrr en skuldin verði greidd.
Óðinn segist í gær hafa síðan gripið til þess ráðs að hringja í neyðarlínuna og tilkynna að Mosa hafi verið stolið. Lögreglan hafi tekið niður nafn hans og sagst ætla að hringja aftur en við það hafi ekki verið staðið. Óðinn segist þá aftur hafa hringt í neyðarlínuna og fengið þá þau svör að hann yrði koma á lögreglustöð á skrifstofutíma og leggja fram kæru.
Óðinn gerði það fyrr í dag og segist hafa þá fengið þau svör að kæruferlið geti tekið allt að tvær vikur og á meðan geti lögreglan lítið gert. Hann segist ekki sáttur við að bíða svo lengi á meðan Mosi sé í vörslu manns sem sé í óreglu. Óðinn segist aðspurður einnig hafa haft samband við Matvælastofnun til að leita aðstoðar. Það hafi hann gert í dag en fengið þau svör að hann yrði að senda tilkynningu í gegnum vef stofnunarinnar og síðan yrði haft samband. Tilkynningin hafi verið send en enn hafi enginn frá stofnuninni haft samband.
Óðinn segir að hann og fjölskyldan hafi reynt að bíða fyrir utan heimili mannsins í viðleitni sinni við að endurheimta hundinn en án árangurs. Í gær hafi maðurinn sent skilaboð og sagt Mosa vera í pössun hjá félaga sínum en hann hafi aðeins nefnt gælunafn félagans. Maðurinn hafi neitað að gefa upp hvar félaginn væri með hundinn. Hann hafi hins vegar sent bróður Óðins skilaboð með staðsetningu en þegar bróðirinn hafi komið þangað hafi maðurinn verið þar án Mosa og haft lítið markvert að segja:
„Hann bauð honum í slag.“
Óðinn segist hafa spurt manninn af hverju Mosi hafi verið í pössun hjá þessum félaga hans en fátt hafi verið um svör. Maðurinn hafi sakað Óðinn og fjölskyldu hans um hótanir sem eigi sér enga stoð í veruleikanum.
Í dag hafi maðurinn vísað á marga staði þar hundurinn hafi átt að vera á en ekkert af því staðist. Óðinn segist vera orðinn úrkula vonar:
„Ef lögreglan ætlar ekki að fara að gera neitt þá bara neyðist ég bara til þess að fara að brjóta upp hurðar og ná í hundinn.“
„Hundurinn gæti verið hvar sem er.“
Óðinn játar því aðspurður að hann og fjölskylda hans hafi miklar áhyggjur af velferð Mosa hann hafi sagt við lögregluna að það sé ekki skrýtið að glæpir séu framdir á Íslandi þegar viðbrögðin séu svona takmörkuð. Hann segir að staðan á manninum sé sú að hann sé dottinn í fíkniefnaneyslu og taki að sér handrukkanir og á meðan sé hann með hundinn í sinni vörslu. Ljóst sé að manninum sé engan veginn treystandi fyrir hundinum í þessu ástandi. Það dugi samt ekki til að flýta fyrir ferlinu hjá lögreglunni.
Hann segist hafa bent lögreglukonu sem tók á móti kærunni að um neyðartilfelli væri að ræða og því yrði að grípa til aðgerða fyrr en hann sýni því þó skilning að almennir lögreglumenn geti lítið annað gert en að vinna innan kerfisins eins og það er.
Óðinn ítrekar áhyggjur sínar af velferð Mosa í samtalinu við DV og segist af þeim sökum vera að íhuga alvarlega að taka málin í sínar hendur:
„Ég veit ekkert hvort að hundurinn minn sé búinn að fá að borða í dag. Ég veit ekkert hvenær hann fór seinast út. Ég veit ekkert hvort hann sé illa haldinn.
Óðinn biður þá sem kunna að hafa séð til Mosa eða hafa einhverja upplýsingar um hvar hann sé miðurkominn að hafa samband við hann í síma 8681444 eða 8685066 eða lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 4441000.