
Chelsea virðist vera í frjálsu falli þessa dagana, en liðið tapaði 3-0 gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Lið Liam Rosenior hefur nú tapað fimm deildarleikjum í röð, gegn Newcastle, Everton, Manchester City, Manchester United og Brighton, án þess að skora eitt einasta mark.
Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 1912 sem Chelsea tekst ekki að skora í fimm leikjum í röð í deildinni.
Liðið er nú í sjöunda sæti, sjö stigum á eftir Liverpool í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Pressa er farin að myndast á Rosenior, sem tók við liðinu í upphafi árs.
Næsti leikur er undanúrslitaleikur í bikarnum gegn Leeds á Wembley.