

Ný gögn frá breska tryggingafélaginu Admiral sýna að slík svik eru orðin bæði algengari og þróaðri en áður. Félagið skráði 71% aukningu í svikum á árinu 2025 miðað við árið á undan og rekur þróunina að hluta til til aukinnar notkunar gervigreindartækni.
BBC greinir frá þessu og segir að samkvæmt upplýsingum frá félaginu hafi komið upp fjölmörg tilvik þar sem gervigreind hefur verið notuð til að búa til eða breyta gögnum í tengslum við tryggingakröfur. Þar á meðal eru falsaðar bílnúmeraplötur, myndir af verðmætum sem aldrei voru til og skemmdir á ökutækjum sem hafa verið ýktar með hjálp gervigreindar.
„Þetta er þróun sem á sér stað í öllum tryggingaiðnaðinum,“ segir starfsmaður í tjónadeild Admiral við BBC.
„Við sjáum gervigreind sem hefur verið notuð til að breyta myndum þannig að þær líti út eins og eitthvað hafi skemmst á ákveðinn hátt, jafnvel til að búa til og falsa skjöl sem voru aldrei til í upphafi.“
Gögn sem BBC Wales hefur undir höndum sýna hvernig slík svik líta út í reynd. Í einu tilviki var lögð fram mynd af gull- og demantsúri sem síðar reyndist vera búin til með gervigreind.
Í öðru tilviki höfðu skemmdir aftan á bíl verið ýktar með myndvinnslu, en einnig voru dæmi um að bílnúmeraplötum væri breytt og þær færðar til á myndum.
Öll þessi tilvik voru stöðvuð af svikateymi Admiral áður en til greiðslu kom, en þróunin vekur þó áhyggjur víðar í greininni.
Insurance Fraud Bureau, bresk stofnun sem berst gegn tryggingasvikum, segir tryggingaiðnaðinn hafa áhyggjur af þróuninni og hafa fyrirtæki í greininni fjárfest markvisst í tækni til að takast á við vandann.
John Davies, fulltrúi stofnunarinnar, segir að bæði einstaklingar og skipulögð glæpagengi nýti sér tæknina.
Þrátt fyrir aukninguna leggja tryggingafélög áherslu á að þau séu betur í stakk búin en áður til að greina slíkar tilraunir. „Þótt þessi verkfæri séu orðin mjög aðgengileg höfum við líka mjög góð kerfi til að verjast þessum svikum,“ segir starfsmaður Admiral.
Bent er á að afleiðingar tryggingasvika geta verið alvarlegar fyrir þá sem freistast til að svindla. Auk þess að fá kröfum hafnað og tryggingum sagt upp geta einstaklingar átt yfir höfði sér kæru – og það geti endað með sekt eða fangelsisdómi.