

Íris Líf Stefánsdóttir bókari hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum fyrir hin ýmsu sparnaðarráð þegar kemur að rekstri heimilisins.
„Það er algjört snilld að komast á gott tilboð, en svo snýst þetta líka um að setja saman ódýrar máltíðir. Og hugsa aðeins fram í tímann hvernig getum við notað afganga frá deginum í næstu máltíð og alls konar svoleiðis,“
segir Íris Líf í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær. Íris Líf deildi því með fylgjendum sínum að matarinnkaup síðustu viku fyrir þriggja manna fjölskyldu hefðu verið undir 10 þúsund krónum.
„Þetta var bara meira en nógur matur fyrir okkur og meira að segja afgangur. Þetta er vel hægt en maður verður að vera svolítið útsjónarsamur,“ segir Íris Líf. Segist hún passa vel upp á matarsóun. „Maður verður að passa vel upp á að maður sé ekki að sóa neinum mat af því það er bara að henda peningum í ruslið.“
Aðspurð um hvað hún hefði keypt þá telur hún upp hafra fyrir hafragraut, hnetusmjör á tilboði, og banana. „Og þá erum við komin með hollan og góðan morgunverð.“
Heilan bakka af eggjum 12 egg, kíló af grískri jógúrt og músli á afslætti þar sem það var að hætta í sölu og núðlur. „Þetta er hugsað sem hádegismatur.“
Kíló af pasta, pestó, heilan kjúkling, hrísgrjón. „Ég nota hrísgrjón mjög mikið, það er ódýrt að elda með þeim. Kjúklingabaunir, tikka masala sósu, alls konar grænmeti og það mest frosið sem er ódýrara.“ Dumplings, túnfisk, kotasælu, smjör og þrjár fernur af mjólk, tvo pakka af sveppum á síðasta séns og kíló af frosnu blómkáli.
View this post on Instagram
Aðspurð um hvort hollur matur sé dýrari en sá óholli segir hún dýrara að kaupa tilbúna vöru.
„Sleppa öllum óþarfa, eins og ost. Við þurfum ekki ost til að lifa af, við getum alveg lifað vel í eina viku án þess að eiga ost og ostur er rándýr. Og það eru alls konar svona vörur eins og rjómi og Hleðsla og alls konar þar sem þetta safnast mjög fljótt upp. Og það er rándýrt að kaupa kjöt og fisk á Íslandi og maður getur sparað, ég mæli með að gerast grænmetisæta eins og ég hef gert. En það eru ekki allir grænmetisætur heima hjá mér þannig að ég kaupi enn fisk og kjöt en reyni að kaupa það sem er ódýrast. Þarna til dæmis keypti ég heilan kjúkling sem kostaði í kringum 1000 kr. Og túnfisk sem er ódýr.“
Íris Líf segir málið snúast um að skoða hvað hún getur fengið fyrir sem minnstan pening.
„En það er ekkert af því sem ég er að kaupa þarna, nema kannski núðlur, sem ég myndi telja sem óhollan mat. Mér finnst ekki nauðsynlegt að borða kjöt á hverjum einasta degi. Við vorum með kjúkling í matinn og notuðum afgang út í matinn daginn eftir. Þá var það núðluréttur með kjúkling og grænmeti. Þennan eina mat vorum við með kjúkling með hrísgrjónum og svo var bara restin sem maður plokkar af beinunum notuð í kvöldmatinn daginn eftir.
Þetta er ekki óeðlileg vika heima hjá mér. Ef maður er vanur að fara í búðina og kaupa fyrir 30 þúsund kr. prófaðu að setja budget og minnka það um 5 þúsund kr. Í þessari viku og tekur svo annan 5 þúsund af í næstu viku. Bara að kaupa poka af Nóa kroppi er 700 kall. Það er ansi mikið af viku-budgetinu hjá mér. Ég held við séum oft að kaupa allt of mikið af drykkjum. Ég miða við að vera ekki að kaupa mikið af drykkjum og ef ég geri það reyni ég að kaupa bara djús sem ég blanda við vatn. Ég á erfitt með að versla í sjoppum, það er rándýrt.“
Íris Líf segir að einn daginn hafi fjölskyldan farið í mat til foreldra hennar.
„Þannig að það er ágætis afgangur eftir núna inn í vikuna, ég sendi reyndar manninn minn í búðina að kaupa mjólk, það var eina sem vantaði.“
Morgunmatur: Hafragrautur með hnetusmjöri og banönum
Hádegismatur: Egg Grísk jógúrt með múslí Núðlur
Kvöldmatur:
1. Kjúklingur og hrísgrjón
2. Núðluréttur með grænmeti og hrísgrjónum og kjúklingi
3. Tikka masala kjúklingabaunir með hrísgrjónum
4. Dumplings með hrísgrjónum
5. Pasta með túnfisk og kotasælu
6. Sveppa Risotto
7. Blómkálsvængir
Íris Líf er dugleg að setja efni bæði inn á Instagram og TikTok.
Íris Líf komst í fréttirnar fyrir ári þar sem hún sagðist hafa það markmið að hætta að vinna þrítug. Fimm ár eru í áfangann og segist hún aðspurð róleg.
„Þetta mun vonandi allt saman ganga upp. Ég er enn að miða við að spara yfir helming af mínum tekjum. Þetta hefur reyndar aðeins breyst þar sem ég er komin út í eigin rekstur, þannig að ég er ekki á tímakaupi hjá einhverjum. Nú borga ég mér laun sjálf og er að reyna að byggja upp flott fyrirtæki sem getur hjálpað mér að koma á þennan stað.“
@irislifstefansÉg stefni á að hætta að vinna fyrir 30 ára afmælið mitt! FIRE er hugtak sem að stendur fyrir : F : Financial I : Independence R : Retire E : Early Mig ætla að vera fjárhagslega sjálfstæð og geta valið í hvað ég eyði tímanum mínum – Þetta snýst auðvitað bara um það að hafa frelsi til þess að geta gert það sem að maður vill 🤩♬ original sound – Íris Líf | Bókari