fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Blind kona skildi ekki hvað hafði orðið af manninum hennar – Lögreglan uppgötvaði óhugnanlegan sannleikann

Pressan
Sunnudaginn 19. apríl 2026 21:00

Heimili hjónanna. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þetta hljómar eiginlega eins og upphafið að kvikmynd sem maður þorir varla að horfa á til enda.  Blind kona í Bandaríkjunum hringdi í lögregluna til að tilkynna að eiginmaður hennar væri horfinn.

Lögreglan tók tilkynningunni auðvitað alvarlega og hóf þegar í stað eftirgrennslan en málið reyndist allt hið undarlegasta.

Það var í lok desember 2021 sem gömul blind kona hringdi í lögregluna og sagðist hafa áhyggjur af 76 ára eiginmanni sínum, William Robert Lang Jr. því hann hefði horfið daginn áður og það var mjög ólíkt honum sagði hún.

LadBible segir að þegar lögreglan kom heim til konunnar hafi hún strax séð að eitthvað var að. Bílar William voru fyrir utan húsið og þegar lögreglumennirnir gengu hring í kringum húsið sáu þeir að rúða var brotin. Það hafði konan auðvitað ekki getað séð.

Hún leyfði lögreglumönnunum að leita í húsinu og það tók þá ekki langan tíma að finna eiginmann hennar.  William lá dáinn í rúminu sínu. Ekki nóg með það, hann hafði verið skotinn mörgum skotum.

Konan hafði verið í húsinu í 36 klukkustundir ásamt líkinu án þess að vita að William var dáinn.

Réttarmeinafræðingar staðfestu fljótlega það sem lögreglan óttaðist. William hafði verið myrtur.

Lögreglan stóð nú frammi fyrir ráðgátunni um hver braut rúðuna og fór inn í húsið og skaut William? Og af hverju var hann skotinn?

Málið er enn óleyst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Í gær

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið