
Liam Rosenior, stjóri Chelsea, gæti verið rekinn á næstu dögum. Þetta segir Kaveh Solkehol, fréttamaður Sky Sports.
Gengi Chelsea hefur verið hörmulegt undanfarið. Liðið tapaði 3-0 gegn Brighton í gær og var það fimmta tapið í röð í ensku úrvalsdeildinni án þess að skora mark. Liðið er komið í brekku í baráttu um Meistaradeildarsæti.
Stjórn félagsins hefur hingað til stutt við bakið á Rosenior, sem tók við af Enzo Maresca í upphafi árs, en í ljósi gengisins undanfarið er verið að skoða stöðu hans.
Chelsea mætir Leeds í undanúrslitum enska bikarsins á sunnudag. Eins og staðan er mun Rosenior stýra þeim leik en það gæti breyst.
Leikmönnum Chelsea var gefið frí í dag.
Chelsea’s sporting leadership are now discussing what to do next. They are taking stock of the situation after last night’s shocking performance at Brighton. Although the club have backed Liam Rosenior up to this point, football is ultimately a results business. It’s too early to…
— Kaveh Solhekol (@SkyKaveh) April 22, 2026