

Willacy, sem var 58 ára, var úrskurðaður látinn klukkan 18:15 að staðartíma í ríkisfangelsinu í Flórída. Aftakan fór fram með lyfjagjöf og var sú fimmta sem framkvæmd hefur verið í Flórída það sem af er ári.
Gluggatjöld að aftökusalnum voru dregin frá á slaginu 18:00 og hófst lyfjagjöfin tveimur mínútum síðar, að lokinni stuttri yfirlýsingu frá Willacy. Þar bað hann fjölskyldu sína og vini afsökunar en hélt jafnframt fram sakleysi sínu.
„Til fjölskyldu fórnarlambsins vona ég að þetta færi ykkur frið. Ef svo er, þá er það gott. En þetta er ekki rétt,“ sagði hann og bætti við að hann myndi aldrei drepa vinkonu sína.
Morðið sem leiddi til dauðadómsins var framið 5. september 1990 þegar Marlys Sather, 56 ára kona í Palm Bay, kom heim í hádegishléi frá vinnu og fann Willacy inni á heimili sínu.
Sather þekkti árásarmann sinn, sem hafði áður unnið hjá henni við garðslátt. Samkvæmt gögnum málsins sló Willacy hana í höfuðið með barefli, sem olli höfuðkúpubroti, áður en hann batt hendur hennar og fætur með vír og límbandi.
Hann reyndi í kjölfarið að kyrkja hana með símasnúru. Þegar það mistókst hellti hann bensíni yfir hana og kveikti í.
Krufning leiddi í ljós að Sather lést af völdum reykeitrunar og var hún því enn á lífi þegar eldurinn var borinn að henni.
Eftir árásina stal Willacy bifreið hennar og öðrum verðmætum og notaði bankakort hennar til að taka út reiðufé. Þegar Sather sneri ekki aftur til vinnu vakti það áhyggjur. Tengdasonur hennar fór á heimilið og fann hana látna.
Síðustu áfrýjunum hans var hafnað á í gær, þar á meðal af Hæstarétti Bandaríkjanna sem synjaði beiðni hans án rökstuðnings, að því er fram kemur í frétt AP.
Fjölskylda Marlys Sather lýsti yfir létti eftir að aftakan fór fram og sagði biðina eftir réttlæti hafa verið langa og erfiða.
„Við höfum beðið í rúm 36 ár eftir réttlæti fyrir móður okkar,“ sagði í yfirlýsingu fjölskyldunnar. Þar var lögð áhersla á að Sather yrði minnst fyrir líf sitt fremur en dauða:
„Móður okkar ætti að vera minnst sem falleg og kærleiksrík dóttir, eiginkona, móðir þriggja barna, amma fimm og langamma fimm barna.“
Eiginmaður hennar hafði látist úr krabbameini nokkrum vikum áður en hún var myrt.
Sonur hennar, John Sather, sagðist fyrir aftökuna vilja vera viðstaddur til að sjá réttlætið ná fram að ganga: „Ég vil ganga úr skugga um að fangelsisstjórinn staðfesti að hann sé látinn. Ég vil tryggja að mamma fái réttlæti.“