

Ítalska lögreglan hefur afhjúpað umfangsmikinn vændishring sem fjöldi þekktra íþróttamanna tengist. Ítalska blaðið La Gazzetta dello Sport greinir frá.
Talið er að um 50 leikmenn í Serie A, efstu deild ítalska fótboltans, hafi nýtt sér þjónustu þar, þar á meðal leikmenn frá AC Milan og Inter. Einnig er þar ónafngreindur ökumaður í Formúlu 1.
Fjórir einstaklingar eru í stofufangelsi grunaðir um að hafa skipulagt vændisstarfsemi og peningaþvætti sem tengist rekstrinum.
Lögregla lagði þá hald á yfir 1,2 milljónir evra sem taldar eru ágóði starfseminnar.
Viðskiptavinirnir sjálfir eru þó ekki til rannsóknar, en málið hefur vakið mikla athygli á Ítalíu. Engin nöfn hafa verið birt opinberlega.
Rannsóknin nær einnig til notkunar á hláturgasi í tengslum við starfsemina.