fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Rekinn eftir 29 ára starf: Stöðvaði þjóf og missti vinnuna

Pressan
Þriðjudaginn 21. apríl 2026 13:43

Sean Egan var rekinn fyrir að reyna að góma þjóf.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn 46 ára gamli Sean Egan hafði starfað fyrir bresku matvörukeðjuna Morrisons í 29 ár, eða frá því að hann var 17 ára gamall. Hann var hins vegar rekinn fyrir skemmstu eftir að hafa reynt að stöðva þjóf í versluninni.

Breskir fjölmiðlar, þar á meðal BBC og Mirror, hafa fjallað um málið í dag og hefur það vakið talsverða athygli á Bretlandseyjum.

Það var í desember síðastliðnum sem „góðkunningi lögreglu“ kom inn í útibú verslunarinnar í Aldridge, skammt frá Walsall, og freistaði þess að stela matvörum. Þessi einstaklingur hafði komið áður í verslunina og gengið út með vörur án þess að greiða fyrir þær.

Þennan örlagaríka dag var maðurinn á leið út með ógreiddar vörur og segir Sean að hann hafi gert það sem hann þurfti til að vernda fyrirtækið. Hann gekk upp að þjófnum og freistaði þess að stöðva för hans en það hefði hann kannski betur látið ógert.

„Ég greip í handlegg hans til að koma í veg fyrir að hann færi í töskuna sína til að ná í eitthvað, og þá urðu átök á milli okkar,“ segir hann.

Hann segir að á þeirri stundu hafi hann talið nauðsynlegt að bregðast við. „Ég vissi ekki hvað hann gæti gert, hvorki mér né öðrum í versluninni,“ segir hann og bætir við að hans hlutverk sem verslunarstjóri sé að gæta öryggis starfsfólks og viðskiptavina.

Þrátt fyrir að lögregla hafi verið kölluð á vettvang í kjölfar atviksins hóf Morrisons eigin rannsókn á málinu. Niðurstaðan varð sú að Egan var rekinn fyrir að brjóta gegn reglum fyrirtækisins sem kveður á um að starfsfólk eigi ekki að beita líkamlegum afskiptum þegar búðarþjófar eru annars vegar. Reglan gengur undir nafninu „deter-and-not-detain“, sem mætti þýða sem „fæla frá en ekki halda föstum“.

Egan gagnrýnir vinnuveitanda sinn harðlega fyrir skort á stuðningi við starfsfólk í slíkum aðstæðum. „Ég hef gefið svo mikið af mér til þessa fyrirtækis þar sem ég hef í raun lifað fyrir vinnuna,“ segir hann og bætir við að uppsögnin hafi haft veruleg áhrif á sálarlíf hans og fjárhag, en síðasti launaseðillinn barst í janúar.

Í yfirlýsingu frá Morrisons segir að fyrirtækið tjái sig ekki um einstök mál, en leggur áherslu á að öryggi starfsmanna og viðskiptavina sé ávallt í fyrirrúmi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Í gær

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið