fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024
Pressan

Sefur þú með kærastanum eða kærustunni? Þá dreymir þig kannski meira

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 4. júlí 2020 19:00

Ætli þau sofi vel?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þú hefur prófað að vera í löngu sambandi hefur þú mjög sennilega upplifað að hegðun ykkar og venjur verða líkari, að minnsta kosti á sumum sviðum.

Þið hafið kannski ekki náð því stigi að vera í samstæðum íþróttagöllum, en þið orðið hlutina kannski eins og farið í háttinn á sama tíma.

Þessi hegðun getur skilað sér alla leið í draumalandið, samkvæmt nýrri rannsókn. Svefnmynstur para sem sofa í sama rúmi samstillast nefnilega upp að vissu marki. REM-svefn þeirra, sem oft kallast draumsvefn, lengist einnig um 10%. Rannsóknin birtist í tímaritinu, Frontiers in Psychiatry.

Sváfu í rannsóknarstofu

Um er að ræða litla rannsókn sem 12 gagnkynhneigð pör tóku þátt í. Pörin sváfu í allt fjórar nætur í svefnrannsóknarstofu. Helming náttanna sváfu þau saman, hinn helminginn sitt í hvoru lagi. Á meðan á rannsókninni stóð var svefn þátttakenda rannsakaður í þaula.

Rannsóknin kallast polysomnografi, og felst hún meðal annars í því að starfsemi heilans er mæld, sem og augnhreyfingar, starfsemi vöðva, öndun, súrefni í blóði og hjartsláttur.

Niðurstöðurnar voru þær að pörin upplifðu lengri REM-svefn þegar þau sváfu saman. Þetta getur komið sér vel, þar sem, REM-svefn tengist því meðal annars hve vel við getum stjórnað tilfinningum okkar, hæfileikum okkar til að eiga í samskiptum og minninu. Helsti veikleiki rannsóknarinnar er sá að þátttakendur sváfu ekki í eigin rúmum, en það getur haft áhrif á svefninn.

Heilinn er vakandi á meðan þú sefur

Þú hefur kannski heyrt að ein af ástæðum þess að við sofum er til þess að flokka mikið magn upplýsinga. Einn mikilvægur hluti þess er að gleyma, gert er ráð fyrir því að heilinn noti tímann á meðan við sofum til þess að losa sig við um 99% þeirra upplýsinga sem við fáum á meðan við erum vakandi, og vinna úr restinni.

Heilinn er ekki verkefnalaus á meðan við sofum, hann er að vinna alla nóttina. Heilinn gætir þess alla nóttina að við séum örugg, án þess að við séum vör við það. Heilinn nemur einnig nærveru makans og hefur þannig áhrif á svefn hins aðilans, sem breytist upp að vissu marki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Manstu eftir Joseph Kony? Nú eru málaliðar Pútíns á eftir honum

Manstu eftir Joseph Kony? Nú eru málaliðar Pútíns á eftir honum
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Svo fékk ég símtal sem breytti öllu“

„Svo fékk ég símtal sem breytti öllu“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Lömuð fyrir neðan háls eftir að hafa borðað súpu úr niðursuðudós

Lömuð fyrir neðan háls eftir að hafa borðað súpu úr niðursuðudós
Pressan
Fyrir 5 dögum

Áhugaverð niðurstaða nýrrar rannsóknar á háhyrningum

Áhugaverð niðurstaða nýrrar rannsóknar á háhyrningum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Íbúar slegnir vegna aðgerða lögreglu – Eru Gilgo-morðinginn og „slátrarinn í Manorville“ einn og sami maðurinn?

Íbúar slegnir vegna aðgerða lögreglu – Eru Gilgo-morðinginn og „slátrarinn í Manorville“ einn og sami maðurinn?
Pressan
Fyrir 6 dögum

Skólapiltur reyndi að berja sofandi samnemendur sína með hamri þegar þeir sváfu – Var að vernda sig gegn uppvakningaheimsendi

Skólapiltur reyndi að berja sofandi samnemendur sína með hamri þegar þeir sváfu – Var að vernda sig gegn uppvakningaheimsendi