fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Bein textalýsing af kappræðum forsetaframbjóðenda í kvöld á DV.is

Heimir Hannesson
Föstudaginn 26. júní 2020 13:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

DV verður með beina textalýsingu af kappræðum Guðna Th. Jóhannessonar og Guðmundar Franklíns Jónssonar í kvöld. Kappræðunum verður sjónvarpað á RÚV og eru á dagskrá kl 19:35, eða strax að loknum kvöld- og veðurfréttum.

Kosið er á morgun, laugardag 27. júní.

Guðni mældist með 93,5% stuðning í síðustu skoðanakönnun Gallup sem birt var fyrir 3 dögum síðan. Þó stuðningsmenn Guðmundar og Guðmundur sjálfur hafi kæst yfir mikilli velgengni hans í skoðanakönnun Útvarps Sögu fyrr í dag þar sem hann mældist með 75,2% stuðning, má ætla að könnun Gallup sé nær raunveruleikanum. Eru stjórnmálaskýrendur á einu máli um að óvæntra úrslita sé harla að vænta þegar kjörkassar verða opnaðir annað kvöld.

Hvernig sem því líður, er þetta líklega síðasta tækifæri Guðmundar Franklíns til þess að snúa kjósendum í sína átt og því fróðlegt hverju hann mun tefla út. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur stigið varlega til jarðar hingað til í kosningabaráttunni. Virðist stefna Guðna og framboð hans hafa hingað til verið að sýna stillingu og erfitt hefur verið að gera greinarmun á frambjóðandanum Guðna og forsetanum Guðna. Örlítil breyting varð þó á því í Kastljósviðtali þar sem Guðni opnaði sig loks um árásir Guðmundar á Guðna er varða störf Elizu Reid, eiginkonu Guðna, hjá Íslandsstofu og svaraði þeim fullum hálsi.

Fróðlegt gæti því verið að sjá hvort Guðni taki frekar til varna í kvöld, eða hvort hann haldi áfram að láta orð og árásir Guðmundar sem vind um eyru þjóta.

DV verður á vaktinni og hefst bein textalýsing á slaginu 19:35.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“