fbpx
Föstudagur 18.júlí 2025
Fréttir

Grunur um e-coli mengun í vatni frá vatnsbóli í Grábrókarhrauni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 3. október 2019 13:32

Grábrókarhraun - Youtube-skjáskot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grunur er um e-coli mengun í neysluvatni frá vatnsbóli Veitna í Grábrókarhrauni. Veitur undirstrika að aðeins sé um óstaðfestan grun að ræða en engu að síður er mælt með því að íbúar í Borgarfirði sjóði neysluvatn í öryggisskyni. Fréttatilkynning um málið er eftirfarandi:

Vatnsbólið þjónar Borgarnesi, Bifröst og Varmalandi auk fjölda sumarhúsa og nokkurra lögbýla í Borgarfirði. Hvort raunveruleg mengun er á ferðinni getur skýrst fyrir hádegi á morgun, föstudag.

Þótt aðeins sé um grun að ræða mælast Veitur til þess að notendur á þessu svæði sjóði neysluvatn í öryggisskyni þangað til önnur tilmæli berast. Sjóða þarf neysluvatn í að minnsta kosti eina mínútu.

Sýnið, sem grunurinn beinist að, var tekið við reglubundna sýnatöku að morgni miðvikudagsins 2. október. Dæmi eru um rangar vísbendingar af slíkum sýnum. Niðurstaðna rannsókna Heilbrigðiseftirlits Vesturlands á sýninu er að vænta fyrir hádegi á morgun, 4. október. Þær niðurstöður geta annars vegar eytt öllum grunsemdum um mengun í vatninu eða styrkt gruninn. Í því tilviki munu niðurstöður endurtekinnar sýnatöku liggja fyrir á sunnudag.

E-coli gerlamengun er alvarleg og getur valdið slæmum sýkingum hjá fólki, einkum þeim sem eru viðkvæm fyrir, þar með talin eru börn og gamalmenni. Því er áríðandi að farið sé að tilmælum um suðu á neysluvatni. Samkvæmt upplýsingum frá Heilsugæslunni í Borgarnesi er ekki vitað af neinum staðfestum tilfellum af magakveisu.

Starfsfólk Veitna vinnur nú að því að gera öllum viðskiptavinum viðvart, sérstaklega viðkvæmum notendum.

Ítrekað skal að um óstaðfestan grun er að ræða en í ljósi þess hve afleiðingar slíkrar mengunar geta verið alvarlegar þykir Veitum rétt að ráðleggja fólki að sjóða neysluvatn þar til frekari niðurstöður liggja fyrir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sláandi vendingar í Air India-slysinu: „Við teljum að þetta hafi verið sjálfsvíg flugstjórans“

Sláandi vendingar í Air India-slysinu: „Við teljum að þetta hafi verið sjálfsvíg flugstjórans“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Átta börn fædd með erfðaefni frá þremur – Laus við hættulega erfðasjúkdóma

Átta börn fædd með erfðaefni frá þremur – Laus við hættulega erfðasjúkdóma
Fréttir
Í gær

Ísland á nafnið Iceland – Breska verslunarkeðjan tapaði

Ísland á nafnið Iceland – Breska verslunarkeðjan tapaði
Fréttir
Í gær

Ragnhildur segir samfélagsmiðla auka á kvíða fólks – „Ég er með þá reglu að eftir kvöldmat er bara enginn sími“

Ragnhildur segir samfélagsmiðla auka á kvíða fólks – „Ég er með þá reglu að eftir kvöldmat er bara enginn sími“