fbpx
Þriðjudagur 05.maí 2026

Einhyrningur þvælist um Reykjavíkurborg – Myndband og viðtal!

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 28. mars 2017 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einhyrningur búinn til úr blöðrum kætti borgarbúa á dögunum, en það voru piltarnir hjá Blaðraranum, þeir Daníel Hauksson og Kristinn Karlsson, sem sköpuðu þessa furðuveru.

Posted by Kristinn Karlsson on 25. mars 2017

Okkur á Bleikt fannst ekki annað hægt en að hafa samband við strákana og fá að spyrja þá nokkurra spurninga um blöðrur, ævintýri og drauma!

Hvað er blaðrarinn?

Sko, það þýðir einhver sem talar mikið og hljómar eins og einhver sem gerir blöðrur svo okkur fannst það vera sniðugt nafn.

Já ég áttaði mig á gríninu í nafninu, en hvað gerir blaðrarinn?

Blaðrarinn er fyrirtæki sem notar blöðrur til að gleðja, það er aðal ástæðan fyrir því að við byrjuðum á þessu.
Við erum búin að starfa í næstum 5 ár og erum nokkur sem höfum gaman af þessu og hittumst alltaf reglulega til að sýna hvort öðru hvað við höfum verið að læra og gerum blöðrudýr saman.
Krakkarnir í blokkinni elska það þegar við förum með blöðrurnar niður í anddyri eftir blöðrukvöld.

Er bissness í blöðrum?

Ertu ekki að grínast, þetta er besti bransinn til að vera í, við erum bara að selja loft í flottum umbúðum.
Það skemmir heldur ekki að vera tvisvar í vikur á Hamborgarafabrikkunni að gera blöðrudýr á meðan fólk bíður eftir borgurum.

Hvað með þennan einhyrning?

Hvað með hann?

Hverning datt ykkur í hug að búa hann til?

Hann er alltaf að poppa upp á facebook hjá okkur þar sem við eigum of marga vini í blöðrubransanum í Ameríku, og okkur fannst þetta svo flott að við prófuðum bara að gera þetta. Við vildum bara prófa að gera eitthvað stórt og okkur leist best á þetta, ætli við búum ekki til eitthvað glænýtt næst sem enginn hefur séð áður, eins og til dæmis blöðruhund.

Hvað tók langan tíma að búa hann til?

Það tók 6-lang klukkutíma og 300+ blöðrur og 20 auma putta. Það hjálpar rosalega við að blása upp blöðrurnar að hvorugur okkar reykir og að við notuðum rafmagnspumpu.

Var ekki sorglegt þegar vindur fór úr honum?

Nei nei, við erum svo reyndir í blöðrubransanum að maður veit betur en að tengjast blöðrudýrunum tilfinningalega.
Annars notum við rosa góðar blöðrur og hann hefði haldist heill í tvær vikur eða meira ef við hefðum ekki farið með hann út og fest hann í trjánum.

Hvar lærir maður svona?

Við byrjuðum að læra á netinu, bókum og dvd. Svo er maður mikið að finna myndir á netinu og reyna sitt besta að herma, eins og við gerðum með einhyrninginn.
Við fórum líka á ráðstefnu í vetur til Ameríku þar sem við lærðum heilan helling.
Núna eftir páska erum við að byrja með námskeið fyrir unglinga þar sem við kennum þeim grunnin í blöðrudýragerð.

Er hægt að fá blaðrara í afmæli?

Já við förum oft í afmæli að skemmta með blöðrudýrum, í barnaafmæli, stórafmæli og sumarhátíðir. Það er hægt að bóka á síðunni okkar.

Hvað er framundan hjá Blaðraranum?

Það er aldrei að vita, við erum með margar hugmyndir og það kemur bara í ljós hvað við gerum, eina sem við vitum er að það verður skemmtilegt.
Það er hægt að fylgjast með því á facebook og snapchat #bladrarinn

Einhyrningabúningur

Stærsta blöðrudýr sem við höfum nokkurntíman gert #Einhyrningur #blaðrarinn

Posted by Blaðrarinn on 27. mars 2017

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Konungur heimsótti Bandaríkin, en hvar var prinsinn?

Konungur heimsótti Bandaríkin, en hvar var prinsinn?
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.