fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fókus

Konungur heimsótti Bandaríkin, en hvar var prinsinn?

Fókus
Þriðjudaginn 5. maí 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karl III Bretakonungur heimsótti Bandaríkin á dögunum og freistaði þess að bæta samskipti milli ríkjanna tveggja sem hafa verið stirð undanfarið. Hitti hann Donald Trump Bandaríkjaforseta og ávarpaði bandaríska þingið þar sem hann sagðist vonast til þess af öllu hjarta að ríkin tvö haldi áfram að verja sameiginleg gildi sín og hunsa háværar kröfur um einangrun.

Yngri sonur konungs, Harry Bretaprins, er búsettur í Bandaríkjunum og vakti það athygli að feðgarnir nýttu ekki tækifærið til að hittast. Það hefur andað nokkuð köldu milli feðganna undanfarin ár eftir að Harry sagði skilið við konunglegar skyldur sínar og viðraði einkamál fjölskyldunnar í ævisögu sem og í eftirminnilegu viðtali hjá Oprah Winfrey. Þeir virtust þó ætla að grafa stríðsöxina í september þegar þeir hittust í fyrsta sinn í rúmt ár. Átti fundur þeirra að vera fyrsta skrefið að sáttum og veltu fjölmiðlar því fyrir sér hvort Harry ætlaði sér að flytja aftur til Bretlands.

Harry var hvergi sjáanlegur í heimsókn konungs til Bandaríkjanna og samkvæmt New York Post var prinsinum ekki boðið á viðburði sem áttu sér stað í tengslum við heimsóknina. Sérfræðingar sem miðillinn ræddi við bentu á að Karl sé ýmsu vanur hvað varði fyrirsagnir æsifréttamiðla og gagnrýni fjölmiðla. Hann nálgist slík mál af konunglegri yfirvegun. Það sama eigi ekki við um Harry.

Harry sé óútreiknanlegur. Hann sé í stöðugri uppreisn gegn konungsfjölskyldunni en noti engu að síður konunglega titla sína sér til framdráttar og tekna. Prinsinn heimsótti Úkraínu nýlega og sagðist þar enn telja sig starfandi meðlim konungsfjölskyldunnar, þrátt fyrir að hafa sagt sig frá slíkum störfum með dramatískum hætti árið 2020.

Hlaðvarpið The Royals Uncensored heldur því fram að sættir séu fjarlægur draumur og þess vegna hafi Karl ekki heimsótt Harry í Bandaríkjunum. Samband þeirra hafi aldrei verið verra. Annar þáttastjórnandinn, Katie Nicholl, lýsti þessu með eftirfarandi hætti:

„Ég held að raunverulega ástæðan fyrir því að þeir hittust ekki sé að konungurinn viti að allt sem fer þeim á milli sé lekið og að það séu góðar líkur á að því verði lekið. Ég tók upp símann og ræddi við manneskju sem er náin konungnum og hún segir að þetta sé einmitt ástæðan.

Sambandið milli konungsins og yngri sonar hans hefur aldrei verið verra en nú því Harry er ekki að nota réttar boðleiðir þegar hann vill ná sambandi við Karl.“

Konungur vill að sonur hans hafi samband við einkaritara hans, en Harry reynir að hafa samband beint við föður sinn „og það gerir Karl taugaóstyrkan“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Líf harmar að hafa lækað þessa færslu – „Mjög leiðinleg skrunmistök“

Líf harmar að hafa lækað þessa færslu – „Mjög leiðinleg skrunmistök“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar – „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“

Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar – „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Inga greinir frá andláti föður síns – „Hann var sæll að fá að fara“

Inga greinir frá andláti föður síns – „Hann var sæll að fá að fara“
Fókus
Fyrir 1 viku

Hvetur alla til að lesa lýsingar leikkonunnar á heimilisofbeldinu sem hann beitti hana – „Ég var fullur“

Hvetur alla til að lesa lýsingar leikkonunnar á heimilisofbeldinu sem hann beitti hana – „Ég var fullur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Rod Stewart ánægður með Karl eftir heimsóknina til Trump – „Sagðir þessum rottuhala til syndanna“

Rod Stewart ánægður með Karl eftir heimsóknina til Trump – „Sagðir þessum rottuhala til syndanna“