fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
433Sport

Mörg félög hafa áhuga eftir erfitt fyrsta tímabil hjá City

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 5. maí 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Juventus er sagt vera fremst í flokki nokkurra ítalskra félaga sem hafa áhuga á að fá Tijjani Reijnders til sín frá Manchester City.

Samkvæmt Football Insider fylgjast ítölsku stórliðin grannt með stöðu hollenska miðjumannsins, sem gekk til liðs við City frá AC Milan síðasta sumar fyrir 46,3 milljónir punda.

Reijnders, sem er 27 ára gamall og lykilmaður í hollenska landsliðinu, hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína á miðsvæðinu og ítölsk félög telja að hann gæti hentað afar vel aftur í Serie A.

Juventus hefur lengi haft áhuga á miðjumanninum og er talið líklegast til að gera formlega tilraun til að fá hann í sumar ef tækifæri gefst.

Óljóst er á þessari stundu hvort City sé tilbúið að hlusta á tilboð í leikmanninn, enda kom hann aðeins til félagsins fyrir tæpu ári síðan, en áhuginn frá Ítalíu fer vaxandi eftir því sem nær dregur félagaskiptaglugganum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Árni Tómas er látinn
433Sport
Í gær

Hugarfarið hafi ekki virkað nógu gott – „Vanmat er eitur“

Hugarfarið hafi ekki virkað nógu gott – „Vanmat er eitur“
433Sport
Í gær

Hefði áhyggjur af þessu sem KR-ingur

Hefði áhyggjur af þessu sem KR-ingur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola með áhugaverð svör þegar hann var spurður út í tímabilið

Guardiola með áhugaverð svör þegar hann var spurður út í tímabilið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Goðsögnin leggur skóna á hilluna

Goðsögnin leggur skóna á hilluna