fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
433Sport

Framtíðin er ekki í hans höndum – Hún er í höndum eiginkonu hans og hvað Guð segir henni

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 5. maí 2026 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Endrick segir að framtíð sín í knattspyrnunni ráðist af því „sem Guð segir eiginkonu minni“ eftir að brasilíski framherjinn hélt áfram að skora fyrir lánsfélag sitt Lyon um helgina.

Endrick, sem er 19 ára gamall og á mála hjá Real Madrid, skoraði eitt marka Lyon í 4-2 sigri gegn Rennes á sunnudag. Sigurinn kom liðinu upp í Meistaradeildarsæti í frönsku deildinni.

Framherjinn hefur farið á kostum síðan hann kom til Lyon á láni í janúar, en hann hefur skorað átta mörk og lagt upp sjö til viðbótar á þeim tíma.

Eftir leikinn var Endrick spurður út í framtíð sína, en hann fór á lán eftir að hafa átt erfitt með að fá tækifæri hjá Real Madrid í kjölfar 51 milljón punda félagaskipta sinna. Hann byrjaði aðeins níu leiki fyrir spænska stórliðið á fyrstu 18 mánuðum sínum hjá félaginu.

„Ef mér er ætlað að vera hér áfram, snúa aftur til Real Madrid eða fara eitthvert annað, þá geri ég það sem Guð segir mér. Það sem Guð segir eiginkonu minni,“ sagði Endrick í viðtali við Globo.

Hann hrósaði jafnframt Lyon fyrir móttökurnar og sagði félagið hafa hjálpað sér mikið í baráttunni um sæti í brasilíska HM-hópnum.

Endrick og eiginkona hans, Gabriely Miranda, greindu nýverið frá því að þau ættu von á sínu fyrsta barni. Parið giftist árið 2024, innan við ári eftir að þau kynntust.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Hægt að kaupa miða á leikinn við Argentínu – Verður aðeins í annað skiptið í sögunni

Hægt að kaupa miða á leikinn við Argentínu – Verður aðeins í annað skiptið í sögunni
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Rashford að taka gríðarlega óvænt skref?

Rashford að taka gríðarlega óvænt skref?
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Neymar birtir afar tilfinningaþrungið myndband

Neymar birtir afar tilfinningaþrungið myndband
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Vieira segir liðið 2004 hafa verið betra – Svona setur hann upp sameiginlegt byrjunarlið

Vieira segir liðið 2004 hafa verið betra – Svona setur hann upp sameiginlegt byrjunarlið
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Guardiola ætlar sér að fara í frí í heilt ár og tekur ólíklega við félagsliði aftur

Guardiola ætlar sér að fara í frí í heilt ár og tekur ólíklega við félagsliði aftur
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun
433Sport
Í gær

Roy Keane brjálaður yfir því hvernig leikmenn United höguðu sér um helgina – Ósáttur með Bruno

Roy Keane brjálaður yfir því hvernig leikmenn United höguðu sér um helgina – Ósáttur með Bruno
433Sport
Í gær

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar