fbpx
Mánudagur 04.maí 2026
433Sport

Carragher segir að Liverpool þurfi að kaupa í þessar þrjár stöður í sumar

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 4. maí 2026 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jamie Carragher segir að Liverpool verði að endurskoða félagaskiptastefnu sína og snúa aftur að þeirri nálgun sem skilaði félaginu árangri undir stjórn Jürgen Klopp.

Liverpool eyddi hvorki meira né minna en 446 milljónum punda síðasta sumar til að styrkja meistaralið sitt, sem er mesta upphæð sem úrvalsdeildarfélag hefur varið á einu félagaskiptaglugga. Þar á meðal voru kaup á Hugo Ekitike, Florian Wirtz og Alexander Isak fyrir gríðarlegar fjárhæðir.

Þrátt fyrir miklar væntingar hefur tímabilið valdið vonbrigðum og Liverpool verður án titils. Liðið tapaði 3-2 gegn erkifjendunum í Manchester United um helgina og situr nú í fjórða sæti deildarinnar, langt á eftir toppliði Arsenal.

Carragher segir að kaupstefnan hafi ekki verið „Liverpool-leg“ og líkti henni frekar við aðferðir Real Madrid.

„Ég vil sjá Liverpool fara aftur í að kaupa réttu leikmennina fyrir rétta upphæð og fylla í þau skörð sem þarf að laga,“ sagði Carragher.

Að hans mati þarf félagið að finna arftaka fyrir Mohamed Salah, kaupa hægri bakvörð og miðjumann til að styrkja byrjunarliðið fyrir næsta tímabil.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Ferguson fluttur á sjúkrahús – Var mættur á Old Trafford en leið illa

Ferguson fluttur á sjúkrahús – Var mættur á Old Trafford en leið illa
433Sport
Í gær

Arteta í skýjunum – „Draumurinn lifir“

Arteta í skýjunum – „Draumurinn lifir“