
Hin unga Mackenzie Shirilla situr nú í fangelsi vegna bílslyss sem átti sér stað árið 2022. Mackenzie sat þá, 17 ára gömul, undir stýri og keyrði á um 160 kílómetra hraða beint á vegg án þess að bremsa. Tveir farþegar voru í bílnum og létu þeir báðir lífið. Ákæruvaldið taldi ljóst að um viljaverk væri að ræða en annar farþeginn var kærasti stúlkunnar, Dominic Russo, og er talið að hann hafi reynt að slíta sambandi þeirra.
Mackenzie hefur þó ávallt haldið fram sakleysi sínu. Hún segist vissulega bera ábyrgð á andláti Dominic og vinar hans, Davion Flanagan, en segir að um slys hafi verið að ræða fremur en viljaverk.
Nýlega kom út heimildarmynd um málið á Netflix sem kallast The Crash. Þar stígur Mackenzie fram og lýsir enn og aftur yfir sakleysi sínu. Eins færa foreldrar hennar rök fyrir því að í máli hennar hafi verið framið réttarmorð. Ákæruvaldið hafi til dæmis mistúlkað textaskilaboð og eins hafi ekki verið tekið tillit til þess að Mackenzie er með POTS-heilkennið sem getur til dæmis valdið yfirliði og heilaþoku. Heimildarmyndin færir rök bæði fyrir sekt og sakleysi í málinu, en þar kemur fram að Mackenzie er á fullu við að reyna að áfrýja þungum dómi sínum.
Ladbible rekur nú að þrátt fyrir að heimildarmyndin reyni að gæta hlutleysis þá hafi þar ekki verið fjallað um eitt lykilatriði í máli ungmennanna. Þar sé tekið fram að Mackenzie hafi vandað sig mikið þegar hún beygði inn á veginn þar sem slysið átti sér stað og eins að stafræn gögn úr síma hennar hafi sýnt að hún kynnti sér staðhætti í aðdraganda slyssins. Hins vegar hafi heimildarmyndagerðarmennirnir sleppt því að rekja hvað ákæruvaldinu fannst mest grunsamlegt við þessa könnunarferð hennar. Talið er að hún hafi verið að kynna sér hvenær umferð bíla og fólks væri hvað minnst svo færri vitni yrðu að slysinu og svo færri gætu komið þeim til aðstoðar.
Í dómskjölum segir:
„Tekið skal fram að Shirilla kaus að aka þessa leið snemma morguns, þegar fáir voru á ferli til að verða vitni að slysinu eða til að koma til aðstoðar. Það hefur komið fram að Shirilla hafi af ásettu ráði botnað bensíngjöfina, komið bílnum í nærri 160 km/klst hraða og ekið honum beint á múrvegginn.“
Heimildarmyndin hefur vakið hörð viðbrögð og hefur föður Mackenzie, Steve, meðal annars verið vikið úr starfi sínu sem grunnskólakennari, en í heimildarmyndinni greindi hann frá því að hafa ekki verið mótfallinn grasreykingum dóttur sinnar. Steve hefur þó sagt að orð hans hafi verið slitin úr samhengi.
„Svið mitt var ekki stuðningur við kannabis, ég var ekki að gangast við því að reykja gras sjálfur. Það sem ég sagði var að ég væri í engri stöðu til að segja hver mætti eða hver mætti ekki reykja. Ég leyfði dóttur minni aldrei að reykja gras.“
Vinir Mackenzie sem í myndinni segjast trúa á sakleysi hennar hafa eins verið gagnrýndir.