
The New York Times greinir frá málinu.
Merdy játaði í mars sök í þremur ákæruliðum um morð af fyrstu gráðu vegna dauða barna sinna; Zachary Merdy, sjö ára, Lilianu Stephen, fjögurra ára, og Olivers Bondarev, sem var þriggja mánaða gamall.
Samkvæmt gögnum málsins fór hún með börnin að ströndinni skömmu eftir miðnætti þann 12. september 2022. Saksóknarar segja að hún hafi orðið börnunum að bana með því að drekkja þeim.
Um klukkustund síðar hafði hún samband við ættingja sína þar sem hún gekk berfætt eftir strandlengjunni í blautum baðslopp. Í samtalinu gaf hún til kynna hvað hefði átt sér stað. Fjölskyldan hafði þá samband við neyðarlínuna 911 og hófst í kjölfarið leit að henni.
Ættingjar fundu Merdy síðar við göngustíg í Brighton Beach þar sem hún sagði þeim að börnin væru „farin“ og baðst afsökunar.
Mikil leit hófst í kjölfarið, bæði á landi, úr lofti og á sjó. Börnin fundust meðvitundarlaus við strandlengjuna um klukkan hálf fimm um morguninn og voru flutt á Coney Island-sjúkrahúsið þar sem þau voru úrskurðuð látin.
Eftir handtöku var Merdy yfirheyrð á lögreglustöð áður en hún var flutt á sjúkrahús til geðrannsóknar.
Málið vakti mikla athygli í Bandaríkjunum, meðal annars vegna upplýsinga sem síðar komu fram um erfiðar félagslegar aðstæður fjölskyldunnar og áhyggjur af velferð barnanna.
Derrick Merdy, faðir Zachary og fyrrverandi eiginmaður Erin, hafði um tíma átt í forræðisdeilu við hana. Hann sagði son sinn oft hafa komið svangan úr heimsóknum til móður sinnar og að þau hefðu dvalið í athvörfum fyrir heimilislausa.
Samkvæmt hljóðupptöku sem faðirinn afhenti fjölmiðlum sagði Zachary við föður sinn nokkrum mánuðum fyrir andlátið að móðir hans „léti hann svelta“. Faðirinn sagðist hafa tilkynnt barnaverndaryfirvöldum um meint ofbeldi og vanrækslu, en að ekkert hefði verið aðhafst.