
Endanleg refsing í máli Caneiro, sem er 59 ára, var tilkynnt á þriðjudag en fyrr á þessu ári var hann sakfelldur fyrir morðin á bróður sínum Keith Caneiro, eiginkonu hans Jennifer og börnum þeirra, Jesse, 11 ára, og Sophia, 8 ára.
Samkvæmt saksóknurum lokkaði Caneiro bróður sinn út úr húsi hans í Colts Neck í nóvember 2018 áður en hann skaut hann til bana. Að því loknu fór hann inn í húsið þar sem hann skaut Jennifer í höfuðið og stakk hana ítrekað meðan hún var enn á lífi.
Börnin tvö voru einnig stungin mörgum sinnum áður en Caneiro kveikti í húsinu til að reyna að hylma yfir glæpinn.
Fyrir dómi kom fram að Jesse hefði verið stunginn sjö sinnum en Sophia meira en 40 sinnum. Saksóknarar sögðu áverka stúlkunnar benda til þess að hún hefði reynt að verjast árásinni með því að liggja á gólfinu og forðast hnífsstungurnar. Þá urðu bæði börnin fyrir reykeitrun eftir að eldurinn kviknaði.
Marc Lemieux dómari lýsti morðunum sem „köldu og yfirveguðu illvirki“ og sagði um hefði verið að ræða vægðarlaus dráp á saklausu fólki.
„Þú ert fjórfaldur morðingi sem slátraðir saklausum börnum. Það er það sem þú ert,“ sagði dómarinn við Caneiro við dómsuppkvaðninguna.
Kviðdómur komst að niðurstöðu í öllum 15 ákæruliðum eftir um fjögurra klukkustunda umræður. Auk morðanna var Caneiro sakfelldur fyrir íkveikju, vopnalagabrot, misnotkun á fjármunum og fyrir að hindra rannsókn lögreglu.
Saksóknarar héldu því fram að hvötin að baki morðunum hefði verið fjárhagslegur ávinningur, en Caneiro átti að fá um 1,5 milljónir dala úr líftryggingu bróður síns og fjölskyldu hans.
Við dómsuppkvaðninguna lýstu aðstandendur fórnarlambanna mikilli sorg. Bette Karidis, móðir Jennifer, sagði að Caneiro hefði „slátrað fallegu fjölskyldunni“ hennar og skilið eftir sig botnlausa sorg og harm.
Verjendur Caneiro héldu fram sakleysi hans meðan á réttarhöldunum stóð og reyndu meðal annars að beina grun að öðrum bróður fjölskyldunnar. Tvær dætur Caneiro báru einnig vitni föður sínum til varnar.
Saksóknarar sögðu þó að lögregla hefði fundið föt Caneiro falin í kjallara hans með blóði frænku hans á þeim auk bensínbrúsa sem tengdist íkveikjunni.
Caneiro hefur 45 daga til að áfrýja dómnum.