fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
433Sport

Fullyrt að Liverpool hafi haft samband við Klopp – Verður Slot rekinn eftir helgi?

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 22. maí 2026 12:52

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óvissa ríkir um framtíð Arne Slot hjá Liverpool þrátt fyrir að Hollendingurinn hafi stýrt félaginu til Englandsmeistaratitils á sínu fyrsta tímabili.

Samkvæmt enskum götublöðum hefur Liverpool þegar haft samband við Jurgen Klopp á meðan stjórnendur félagsins meta stöðu Slot eftir vonbrigðatímabil á lokasprettinum.

Liverpool vann deildina á síðasta tímabili en hefur átt erfitt uppdráttar á þessu ári þrátt fyrir stórfelld leikmannakaup síðasta sumar. Tap gegn Aston Villa í næstsíðustu umferðinni setti Meistaradeildarsætið í hættu og Bournemouth andar nú ofan í hálsmálið á liðinu fyrir lokaumferðina.

SunSport greinir frá því að Liverpool hafi haft samband við Klopp, þó óljóst sé hvort það sé til að leita ráða hjá fyrrum stjóranum eða kanna áhuga hans á ótrúlegri endurkomu.

Jurgen Klopp yfirgaf Liverpool árið 2024 eftir níu ára afar farsælt tímabil þar sem hann vann meðal annars ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu. Þjóðverjinn er enn í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum félagsins.

Þá hefur verið greint frá því að eigandi Liverpool, John Henry, hafi flogið til Palma de Mallorca þar sem Klopp býr nú.

Ef Liverpool ákveður að skipta um stjóra er Andoni Iraola, stjóri Bournemouth, sagður vera efstur á óskalistanum hjá félaginu.

Næstu dagar gætu því orðið afar örlagaríkir á Anfield.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Þorsteinn léttur á fundi í Laugardal – „Hvar á ég að byrja?“

Þorsteinn léttur á fundi í Laugardal – „Hvar á ég að byrja?“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Útskýrir af hverju hann er að fara frítt frá City í sumar

Útskýrir af hverju hann er að fara frítt frá City í sumar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Vill ganga í raðir United – Hafa sett verðmiða á hann

Vill ganga í raðir United – Hafa sett verðmiða á hann
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Myndband úr Garðabæ í mikilli dreifingu og foreldrar í bænum sagðir öskuillir – „Þetta er bara viðbjóður“

Myndband úr Garðabæ í mikilli dreifingu og foreldrar í bænum sagðir öskuillir – „Þetta er bara viðbjóður“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Maguire ekki með á HM – „Ég er miður mín“

Maguire ekki með á HM – „Ég er miður mín“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Gamli maðurinn gæti haldið áfram

Gamli maðurinn gæti haldið áfram
433Sport
Í gær

Herða tökin gegn þeim sem nota ólöglega sjónvarpsþjónustu – Gríðarleg aukning á síðustu árum

Herða tökin gegn þeim sem nota ólöglega sjónvarpsþjónustu – Gríðarleg aukning á síðustu árum
433Sport
Í gær

Áhugaverður landsliðshópur fyrir mikilvæga leiki – Sveindís Jane í hóp þrátt fyrir meiðsli

Áhugaverður landsliðshópur fyrir mikilvæga leiki – Sveindís Jane í hóp þrátt fyrir meiðsli