fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Pressan

Þessar matvörur ætti fólk að borða daglega að sögn sérfræðinga

Pressan
Laugardaginn 23. maí 2026 13:30

Epli eru trefjarík og ljúffeng.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meiri orka, betri melting og sterkara ónæmiskerfi. Allt þetta getur maturinn, sem þú borðar, styrkt ef þú velur rétta matinn.

Í umfjöllun CHIP kemur fram að næringarfræðingar bendi sérstaklega á sjö fæðutegundir sem fólk ætti að borða daglega.

Þessi matvæli eru:

Epli – Þau eru klassísk vítamínsprengja. Þau eru líka full af trefjum eins og aðrir ávextir en eplin eru meðal þeirra ávaxta sem innihalda einna mest af þessari hollustu. Að borða ávexti hjálpar til við að uppfylla daglega þörf okkar fyrir C-vítamín og styrkir ónæmiskerfið.

Repjuolía – Hún inniheldur bæði omega-3 og einómettaðar fitusýrur. Matskeið á dag styrkir hjartað og frumur líkamans.

Grænt grænmeti – Það er fullt af andoxunarefnum. Grænkál, spínat og spergilkál eru stútfull af vítamínum og steinefnum. Þau vinna gegn bólgum og geta minnkað líkurnar á krónískum sjúkdómum. Þrír skammtar á dag er fullkomið.

Hörfræ – Þau eru góð fyrir magann og blóðþrýstinginn. Þau innihalda mikið af trefjum og omega-3. Þau hjálpa meltingunni og geta jafnvel lækkað blóðþrýstinginn. Notaðu möluð fræ og og mundu að drekka nægilega mikið.

Súrkál – Það er náttúruleg uppspretta mjólkursýrugerla. Gerjað grænmæti á borð við súrkál styrkir þarmaflóruna með góðum bakteríum. Veljið óunnið eða heimagert súrkál til að fá sem mest út úr því.

Haframjöl – Það er hinn fullkomni morgunmatur því það inniheldur flókin kolvetni, prótín og járn.

Grófkorna matvörur – Matvörur úr grófu korni metta lengur og betur en aðrar matvörur. Gróft korn inniheldur mikið af B-vítamíni og trefjum sem tryggja langvarandi mettunartilfinningu. Mælt er með að fólk borði nokkra skammta af grófu korni á dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hvarf Madeleine McCann – Segir að ógeðfelldur grunur gegn McCann-hjónunum lifi enn góðu lífi

Hvarf Madeleine McCann – Segir að ógeðfelldur grunur gegn McCann-hjónunum lifi enn góðu lífi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sérfræðingar vara við geitungasumri: Bú finnast á ótrúlegustu stöðum

Sérfræðingar vara við geitungasumri: Bú finnast á ótrúlegustu stöðum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður
Pressan
Fyrir 5 dögum

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk