fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Pressan

10 óáreiðanlegustu notuðu bílarnir – lúxusinn getur reynst dýrkeyptur

Pressan
Föstudaginn 8. maí 2026 06:30

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný samantekt breska tryggingarfélagsins Warrantywise bendir til þess að eigendur lúxus- og jeppabíla þurfi oftar en aðrir að glíma við kostnaðarsamar bilanir og dýrar viðgerðir.

Breska blaðið Daily Mail fjallaði um niðurstöðurnar, sem byggja á yfir 1,6 milljónum viðgerðargagna frá bílum á aldrinum þriggja til fimmtán ára.

Samkvæmt úttektinni eru það einkum stórir lúxusbílar frá Land Rover, BMW, Mercedes-Benz og Audi sem koma verst út þegar litið er til bilanatíðni og viðgerðarkostnaðar.

Margir bílanna eru þekktir fyrir mikinn búnað, flókna tækni og dýra varahluti, sem getur gert viðhald eldri eintaka afar kostnaðarsamt.

Þetta eru 10 óáreiðanlegustu notuðu bílarnir samkvæmt Warrantywise:

  1. Land Rover Discovery – einkunn 17,2 af 100
  2. BMW 7 Series – 18,7
  3. Mercedes-Benz S-Class – 19,2
  4. Audi A7 – 19,2
  5. Range Rover Velar – 19,7
  6. Range Rover Sport – 21,1
  7. BMW X5 – 23,6
  8. Land Rover Discovery Sport – 24,1
  9. BMW X7 – 26,5
  10. Land Rover Defender 110 – 28,0

Fyrirtækið hefur áður bent á að viðgerðir á slíkum bílum geti hlaupið á háum fjárhæðum. Í einu tilfelli nam viðgerð á Range Rover tæplega 24 þúsund pundum, jafnvirði rúmlega fjögurra milljóna íslenskra króna á núverandi gengi.

Á meðan lúxusbílarnir komu illa út í úttektinni reyndust einfaldari asískir smábílar almennt mun áreiðanlegri. Þar voru meðal annars Toyota Yaris, Kia Picanto og Toyota Aygo meðal þeirra bíla sem fengu bestu einkunnirnar þegar kemur að bilanatíðni og viðgerðarkostnaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Er það núna sem Pútín er hættulegastur?

Er það núna sem Pútín er hættulegastur?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Svíar lækka sakhæfisaldurinn

Svíar lækka sakhæfisaldurinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Segir að hér geti orðið flugöngþveiti í sumar

Segir að hér geti orðið flugöngþveiti í sumar
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fjármálaráðgjafi segir þessi ráð hjálpa til við að lækka skuldirnar

Fjármálaráðgjafi segir þessi ráð hjálpa til við að lækka skuldirnar
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sakleysisleg Facebook-mynd vakti hroll: „Hvar er brosið þitt?“

Sakleysisleg Facebook-mynd vakti hroll: „Hvar er brosið þitt?“
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Við hófum samfarirnar“ – „Síðan hringdi hann myndsímtal til vinar síns“

„Við hófum samfarirnar“ – „Síðan hringdi hann myndsímtal til vinar síns“